Allt sem fer undir flísarnar: grunnur, rakaþétting, þéttiborðar og flísalím frá Velosit og Alfix. Fæst á vefnum og á Smiðjuvegi 5.

Af hverju þarf að rakaþétta?

Flísar og fúga eru ekki vatnsheldar. Vatn kemst smám saman í gegnum fúguna og inn í vegginn eða gólfið undir, og þar getur það valdið myglu og skemmdum sem sjást oft ekki fyrr en löngu seinna. Þess vegna gerir byggingarreglugerð kröfu um vatnsþéttingu undir flísum í baðherbergjum og öðrum votrýmum.

Rakaþéttingin er samfellt lag sem borið er á veggi og gólf áður en flísalagt er. Hún verður að ná yfir samskeyti veggja og gólfs, horn og rör, því þar er hættast við leka. Hér að neðan er farið yfir kerfið skref fyrir skref.

Velosit DF 941 rakaþéttikvoða borin á vegg með rúllu

Kerfið, skref fyrir skref

  1. Undirlagið. Veggir og gólf eiga að vera hrein, þurr og föst í sér. Gólfið þarf að halla að niðurfallinu áður en rakaþéttingin hefst.
  2. Grunnur. Alfix VådrumsPrimer er borinn á allt flötinn. Hann bindur gleypið undirlag og ver rakaviðkvæmt undirlag eins og gipsplötur. Hann er bleikur, svo það sést hvar búið er að grunna.
  3. Þéttiborðar. Velosit DB 829 flexborði er lagður í fyrsta lag rakaþéttikvoðunnar í samskeyti veggja og gólfs og yfir sprungur. Í innhorn, úthorn og við rör eru notaðir tilsniðnir þéttiborðar DB 831–833.
  4. Rakaþétting. Velosit DF 941 rakaþéttikvoða er borin á í tveimur lögum, fyrst gráu og síðan bláu, svo það sést að allt sé þakið. Seinna lagið fer á eftir 2–3 klst. og efnisnotkunin er um 1,0 kg/m² fyrir bæði lögin.
  5. Flísalögn. Flísalagt er beint ofan á DF 941. Velosit TA 705 er sveigjanlegt flísalím fyrir stórar flísar og náttúrustein. Velosit TA 706 harðnar hraðar, svo hægt er að fúga eftir 3–4 klst., og hentar á gólfhita.
  6. Þrif. Alfix Rensevæske fjarlægir sementsslæðu af nýjum flísum og kalk síðar meir. Hún er þynnt 1:5–1:10 með vatni og skemmir ekki króm eða ryðfrítt stál.

DF 941 þarf 5 daga áður en hún þolir vatnsþrýsting, til dæmis sturtu í fullri notkun.

Vörurnar

Alfix VådrumsPrimer

Votrýmisgrunnur á pússningu, hleðslu, steypu og gipsplötur. 2,5 l brúsi.

Velosit DF 941

Tilbúin rakaþéttikvoða, „dúkur í dós“. Teygist yfir 100 %. 5 og 15 kg fötur.

Velosit DB 829

Flexborði í samskeyti og sprungur, 120 mm × 50 m. Horn og rör: DB 831–833.

Velosit TA 705

Sveigjanlegt flísalím, C2 TE S1, fyrir stórar flísar og náttúrustein. 20 kg poki.

Velosit TA 706

Hraðharðnandi flísalím, C2 FTE S1. Fúgun eftir 3–4 klst. Hentar á gólfhita.

Alfix Rensevæske

Mildur sýruhreinsir sem fjarlægir sementsslæðu og kalk af flísum.

Hvað þarf mikið?

EfniNotkunDæmi: 20 m² veggir og gólf
DF 941Um 1,0 kg/m² (tvö lög)Um 20 kg, t.d. 15 kg + 5 kg fata
DB 829Lengd allra samskeyta veggja og gólfsEin 50 m rúlla dugar í flest baðherbergi
DB 831–833Eitt stykki á hvert horn og rörTelja horn og rör

Efnisnotkun flísalíms fer eftir stærð flísanna og tannspaðanum. Sendu okkur mál og flísastærð og við reiknum út hvað þarf.

Veggplötur í stað flísa

Ef ekki á að flísaleggja koma Modee-veggplötur til greina. Þær eru 4 mm steinefnaplötur, 1175 × 2800 mm, sem límdar eru beint á vegginn, líka yfir gamlar flísar, og smelltar saman án fúgu. Í sturtum mælir framleiðandinn samt með sömu rakaþéttingu undir plötunum og undir flísum: rakaþéttikvoðu í tveimur lögum og þéttiborða í hornum.

Plöturnar fást með steináferð (Stone Essence), steypuáferð (Raw Concrete), einlitar (Pure Structure) og með viðaráferð (True Wood).

Kjallarar, sundlaugar og þrýstivatn

DF 941 er gerð fyrir venjuleg votrými þar sem vatnið kemur framan á. Ef vatn getur þrýst á vegginn að aftan, til dæmis í kjallaraveggjum sem standa í jörðu, eða álagið er meira eins og í sundlaugum, þarf annað kerfi. Þar notum við þéttimúr eins og Velosit WP 120 og WP 101. Sjá líka lekaþéttingu ef vatn er þegar farið að leka inn.

Algengar spurningar

Má flísaleggja beint ofan á DF 941?

Já. DF 941 er gerð sem undirlag fyrir flísalím, bæði venjulegt og sementsbundið.

Má rakaþétta á gipsplötur?

Já. Gipsplötur eru fyrst grunnaðar með Alfix VådrumsPrimer, sem ver þær gegn raka, og síðan er DF 941 borin á.

Hve lengi þarf að bíða áður en sturtan er notuð?

DF 941 þarf 5 daga áður en hún þolir vatnsþrýsting. Svo þarf flísalímið og fúgan að harðna samkvæmt leiðbeiningum á umbúðunum.

Af hverju er DF 941 í tveimur litum?

Fyrra lagið er grátt og það seinna blátt. Þannig sést strax ef einhvers staðar vantar seinna lagið.

Hvaða flísalím hentar stórum flísum?

Velosit TA 705 er sveigjanlegt flísalím fyrir stórar flísar og náttúrustein. Ef verkið þarf að ganga hratt fyrir sig er TA 706 hraðharðnandi, og þá má fúga eftir 3–4 klst.

Seljið þið bara til fagmanna?

Nei, öll efnin eru til sölu á vefnum og í verslun okkar á Smiðjuvegi 5, bæði fyrir fagmenn og þá sem gera upp sjálfir. Við förum gjarnan yfir verkið með þér.

Ertu að gera upp baðherbergi?

Komdu á Smiðjuveg 5 eða hringdu í 420 4010. Við förum yfir verkið, reiknum efnisþörfina og tökum til það sem þarf.