-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Flísalím, hraðharðnandi, C2 FTE S1 – Velosit TA 706
6.335 kr.
Hraðharðnandi og sveigjanlegt flísalím með löngum opnum tíma. Hentar fyrir stórar flísar og náttúrustein, á veggi og gólf, inni og úti.
- Flokkur C2 FTE S1 (EN 12004)
- Fúgun og létt umferð eftir 3–4 klst.
- Opinn tími um 30 mínútur
- Hentar í votrými og á gólfhita, 20 kg poki
Þú gætir einnig þurft
Velosit TA 706
TA 706 er sementsbundið flísalím sem harðnar hratt og er sveigjanlegt (S1). Það rennur ekki á veggjum og hefur langan opinn tíma, svo það hentar vel fyrir stórar flísar. Límið er notað á gips, ílögn, steypu og hleðslu, á veggi og gólf, inni og úti, á gólfhita og í votrýmum með rakaþéttingu, t.d. DF 941.
Þar sem ekki liggur á er TA 705 hefðbundna flísalímið.
Vinnsla
Hver 20 kg poki er hrærður út í 5,6–6,4 l af vatni (28–32 %) þar til límið er kekkjalaust. Það er borið á með tenntum spaða og flísunum þrýst í blautt límið innan opna tímans. Hiti undirlags þarf að vera 5–35 °C.
Tæknigögn
- Vinnslutími: um 45 mínútur
- Opinn tími: um 30 mínútur
- Fúgun og létt umferð: eftir 3–4 klst. við 23 °C
- Límlag: mest 10 mm
- Notkun á sléttu undirlagi: 2,5 kg/m² (6 mm tennur), 3,3 kg/m² (8 mm), 3,8 kg/m² (10 mm)
- Litur: grár
Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.
| Þyngd | 20 kg |
|---|


