Sýruhreinsir fyrir flísar – Alfix Rensevæske

2.500 kr.

Mildur sýruhreinsir sem leysir upp kalk og óhreinindi og fjarlægir sementsslæðu af nýjum flísum. Hentar í baðherbergjum og skemmir ekki króm eða ryðfrítt stál.

  • Fyrir flísar, klinku, mósaík, vínyl og ryðfrítt stál
  • Þynnt 1:5–1:10 með vatni
  • Ekki á marmara eða glerung
  • Fæst í 1 og 2½ l
Vörunúmer: ALF-7001-1 Flokkar: , Lausn: Birgi:

Alfix Rensevæske

Rensevæske er mildur hreinsir á fosfórsýrugrunni með sápuefnum. Hann leysir upp kalk og óhreinindi og fjarlægir sementsslæðu af nýlögðum flísum, klinku og mósaík, og hentar því vel í baðherbergjum. Hann skemmir ekki króm eða ryðfrítt stál. Ekki má nota hann á marmara eða glerung.

Notkun

Flöturinn er vættur með hreinu vatni. Rensevæske er þynnt með vatni 1:5–1:10 og borið á með svampi. Eftir 5–10 mínútur er flöturinn skrúbbaður og skolaður með hreinu vatni. Sementsslæða er í fyrsta lagi hreinsuð 24–48 klst. eftir að fúgað var. Ef óvíst er hvort flöturinn þolir sýru er prófað á litlum fleti fyrst. 1 l dugar á 20–40 m².

Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.

Umbúðir

1 l

Tækniblað Rensevæske (danska)

Sækja
Alfix Rensevæske, sýruhreinsir fyrir flísar
Sýruhreinsir fyrir flísar – Alfix Rensevæske

2.500 kr.

Setja í körfu