-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Votrýmisgrunnur – Alfix VådrumsPrimer
8.900 kr.
Fljótþornandi grunnur sem er borinn á áður en votrými eru rakaþétt. Bindur gleypið undirlag og ver rakaviðkvæmt undirlag, t.d. gipsplötur.
- Á pússningu, hleðslu, steypu og gipsplötur
- Samþykktur fyrir votrými
- Bleikur, svo sést hvar hefur verið grunnað
- 2,5 l brúsi
Þú gætir einnig þurft
Rakaþéttikvoða fyrir baðherbergi – Velosit DF 941
Price range: 7.880 kr. through 22.900 kr.
Veldu
Alfix VådrumsPrimer
VådrumsPrimer er grunnur úr fjölliðudreifu (dispersion) sem er borinn á undirlagið áður en baðherbergi og önnur votrými eru rakaþétt. Hann bindur gleypið undirlag og myndar rakavörn á rakaviðkvæmu undirlagi. Grunnurinn er bleikur, svo auðvelt er að sjá hvar hefur verið borið á, og hann þornar hratt.
Grunnurinn hentar á sementspússningu, hleðslu, steypu eldri en 28 daga, léttsteypu, frauðsteypu, ílagnir og gipsplötur, og á krossvið á gólfum.
Notkun
- Gleypið undirlag, t.d. pússning, hleðsla og steypa: um 0,10 l/m²
- Gipsplötur og trefjagipsplötur: um 0,20 l/m²
- Gipspússning og krossviður: tvær umferðir, um 0,20 l/m²
Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.


