Flexborði fyrir rakaþéttingu, 120 mm × 50 m – Velosit DB 829

20.549 kr.

Þunnur og teygjanlegur þéttiborði sem lagður er í rakaþéttikvoðu eða þéttimúr við samskeyti veggja og gólfs, í sprungur og við rör, t.d. í votrýmum undir flísar.

  • 120 mm breiður og 0,5 mm þykkur
  • Teygist yfir 100 %
  • Lagður í DF 941 rakaþéttikvoðu
  • 50 m rúlla

Þú gætir einnig þurft

Rakaþéttikvoða fyrir baðherbergi – Velosit DF 941 Price range: 7.880 kr. through 22.900 kr.
Veldu
Vörunúmer: Vel-DB829 Flokkar: , Lausn: Birgi:

Velosit DB 829

DB 829 er vatnsþéttur og mjög teygjanlegur borði fyrir samskeyti og sprungur. Hann er aðeins 0,5 mm þykkur og hentar því vel undir flísar. Borðinn er notaður við samskeyti veggja og gólfs, yfir sprungur, við rör sem ganga í gegnum gólf eða veggi og þar sem mætast efni sem hreyfast misjafnt. Hann þolir útfjólublátt ljós.

Borðinn er ætlaður í rakaþéttingu í baðherbergjum, sturtum og öðrum votrýmum, lagður í DF 941 rakaþéttikvoðu. Samkvæmt tækniblaði má einnig leggja hann í WP 120. Fyrir horn og rör eru tilsniðin innhorn, úthorn og flexmottur fyrir rör, DB 831–833.

Vinnsla

Sprungur og samskeyti sem eru breiðari en 6 mm eru fyrst fyllt með bakfyllingu eða teygjanlegu fúguefni. Síðan er DF 941 eða WP 120 borið á í breidd borðans með 4 mm tenntum spaða, borðanum þrýst í blautt efnið og hann strokinn sléttur. Borðar skarast um 5 cm. Þegar efnið hefur tekið sig er borðinn yfirlagður með sama efni. Borðinn þolir vatnsþrýsting frá þeirri hlið sem hann er lagður á. Hiti undirlags þarf að vera 5–35 °C.

Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.

Velosit DB 829, flexborði fyrir rakaþéttingu, 120 mm × 50 m
Flexborði fyrir rakaþéttingu, 120 mm × 50 m – Velosit DB 829

20.549 kr.

Setja í körfu