Veggplötur með steináferð – Modee Stone Essence

9.680 kr. / m²

Steinefnaplötur á veggi með útliti marmara, sandsteins, kalksteins og travertíns. Plötur 1175 × 2800 mm, 4 mm þykkar, sem má leggja beint yfir gamlar flísar.

  • Vatnsheldar, henta í baðherbergi og sturtur
  • Smelltar saman og límdar, engin fúga
  • Brunaflokkur B-s2,d0
  • Einnig sem flísar 600 × 1200 mm í sérpöntun
  • 17 áferðir, 4 á lager
  • Verð á m², 3,29 m² á plötu
Vörunúmer: Á ekki við Flokkur: Vörulína: Birgi:

Modee Stone Essence

Steinefnaplötur á veggi með útliti marmara, sandsteins, kalksteins og travertíns.

Modee eru steinefnaplötur frá pólska framleiðandanum Decora. Plöturnar eru 1175 × 2800 mm, aðeins 4 mm þykkar og um 8,5 kg/m², svo einn maður ræður við þær. Þær eru vatnsheldar og þola hreinsiefni, svo þær henta baðherbergjum og sturtum jafnt sem eldhúsum, göngum, svefnherbergjum og sjónvarpsveggjum, og líka hótelum og skrifstofum.

Plöturnar má leggja beint yfir gamlar flísar, svo ekki þarf að brjóta niður, rétta veggi eða þola rykið sem fylgir. Þær eru límdar á vegginn með Modee-lími og smelltar saman með Modee LOCK, tungu og gróp, en í köntunum er rauf fyrir sílikon svo samskeytin verða vatnsheld. Plöturnar er auðvelt að skera og kantar og horn eru kláruð með Modee-prófílum. Oft er hægt að klæða heilt baðherbergi á einum degi.

Áferðir

Á lager: Monreale Ivory – matt steypuáferð, Monza Grey – matt steypuáferð, Pietra Santa White – matt steypuáferð, Palatina White – rákuð áferð.

Sérpöntun: Monreale Ivory – rákuð áferð, Monreale Grey – matt steypuáferð, Monreale Grey – rákuð áferð, Monreale Black – matt steypuáferð, Monreale Black – rákuð áferð, Monreale Black – háglans, Monza White – matt steypuáferð, Pietra Santa White – háglans, Palatina Sand – rákuð áferð, Zenith Grey – matt steypuáferð, Caldera – háglans. Hafðu samband um afhendingartíma.

Flísar í sérpöntun: allar áferðirnar fást líka sem flísar, 600 × 1200 mm (4 í kassa, 2,88 m²), í sérpöntun. Alpina Mist og Lunara, báðar í háglans, eru aðeins til sem flísar. Flísarnar henta vel þar sem erfitt er að koma 2,8 m plötu inn í rýmið.

Myndirnar sýna allar áferðirnar. Litir geta virst aðrir á skjá en í raun.

Uppsetning

  • Undirlag: fast, þurrt og hreint, t.d. gamlar flísar, pússning eða gipsplötur. Ójöfnur yfir 3 mm á 20 cm eða 5 mm á yfir 2 m eru jafnaðar fyrst.
  • Aðstæður: 18–30 °C og 40–65 % rakastig í rýminu, og undirlagið að minnsta kosti 15 °C.
  • Skurður: plötuna má rista með dúkahníf og brjóta, eða saga með hjólsög eða stingsög. Göt fyrir rör og innstungur eru gerð með gatasög.
  • Lím: borið á í lóðréttum röndum með um 10 cm millibili, 1–2 cm frá brún, og plötunni þrýst á með gúmmíhamri.
  • Þenslubil: 3 mm bil er skilið eftir við loft, í hornum og við gólf á baðherbergjum. Það er fyllt með sílikoni þegar límið hefur harðnað í að minnsta kosti 12 klst.
  • Áferð: til að mynstrið haldist eins er öllum plötunum snúið eins. Ef plötu er snúið um 180° snýst mynstrið líka.

Í sturtum og á blautum svæðum

Framleiðandinn mælir með að veggir í sturtum og á öðrum blautum svæðum séu fyrst rakaþéttir með rakaþéttikvoðu í tveimur lögum, með þéttiborða í hornum og samskeytum veggja og gólfs, og að plöturnar séu síðan límdar með Modee-lími. Hjá okkur fást votrýmisgrunnur, Velosit DF 941 rakaþéttikvoða og þéttiborðar. Sjá votrými og baðherbergi, og hafðu samband ef þú vilt fara yfir kerfið.

Tæknigögn

Framleiðandi Decora (Pólland)
Efni Steinefnaplata
Stærð 1175 × 2800 mm, 3,29 m² á plötu
Þykkt 4 mm
Þyngd Um 8,5 kg/m², um 31 kg á plötu
Vatnsheldni Stenst EN ISO 13553, engin þensla í vatni
Brunaflokkur B-s2,d0
Samskeyti Modee LOCK, tunga og gróp, rauf fyrir sílikon
Útgufun Stenst prófanir á formaldehýði, VCM og þungmálmum
Endurvinnsla 100 % endurvinnanlegar

Tækniblað Modee plötur (PDF, á ensku) · Uppsetningarleiðbeiningar (PDF)

Áferð

Monreale Ivory – matt steypuáferð, Monza Grey – matt steypuáferð, Pietra Santa White – matt steypuáferð, Palatina White – rákuð áferð

Stærð

1175 × 2800 mm (plata), 600 × 1200 mm (flísar, sérpöntun)

Þykkt

4 mm

Magn á plötu

3,29 m²

Brunaflokkur

B-s2,d0

Modee Monreale Ivory veggplötur í rými
Veggplötur með steináferð – Modee Stone Essence

9.680 kr. / m²

Setja í körfu This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page