-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Þéttimúr, stífur – Velosit WP 101
Price range: 8.080 kr. through 8.606 kr.
Sementsbundinn þéttimúr sem er kústaður, dreginn eða sprautaður á steypu og hlaðna veggi til að stöðva raka og vatn.
- Þolir 13 bar vatnsþrýsting að framan og 5 bar að aftan
- Um 2 mm lag í 1–2 umferðum
- Slitsterkur, yfir 50 MPa
- 25 kg poki
Þú gætir einnig þurft
Velosit WP 101 þéttimúr
WP 101 er notaður í kjallara og bílakjallara, lyftugryfjur, vatnstanka og á veggi þar sem raki leitar upp. Vegna þess að hann þolir vatnsþrýsting að aftan (5 bar) má bera hann innan á vegg þegar ekki er hægt að komast að honum utan frá. Hann er líka notaður sem grunnlag undir aðra þéttingu.
WP 101 er stífur. Ef veggurinn hreyfist eða er sprunginn er WP 120 betri kostur, því hann er teygjanlegur og brúar sprungur. Ef vatn lekur inn um sprungur þarf fyrst að þétta þær með inndælingu, sjá lekaþéttingu.
Þar sem vatnsþrýstingur er minni er hagkvæmari útgáfan WP 100 oft nóg.
Vinnsla
Hrærður með 17–20 % vatni (4,3–5,0 l í poka) og borinn á rakt undirlag. Kústaður í tveimur umferðum eða dreginn á í einni. Í heitu og þurru veðri er honum haldið rökum í allt að 4 klst.
Undirbúningur, grunnur og samanburður á öllum viðgerðarefnunum er á síðunni um steypuviðgerðir.
| Þyngd | 25 kg |
|---|---|
| Litur | Ljósgrár, Dökkgrár |









