Bindigrunnur og ryðvörn – Velosit CP 201

9.878 kr.

Sementsbundinn grunnur sem er borinn á steypu og járnabindingu áður en viðgerðarmúr er lagður. Hann bætir viðloðun múrsins og ver járnið gegn ryði.

  • Undir RM-viðgerðarmúr frá Velosit
  • Ryðvörn fyrir járnabindingu
  • Viðloðun 2,8 MPa, flokkur R4
  • 20 kg poki

Velosit CP 201

CP 201 er þunnfljótandi, rýrnunarbætt sementsblanda. Hún er kústuð eða sprautuð á hreinsaða steypu og á járnabindingu sem kemur í ljós þegar skemmd steypa er brotin burt. Múrinn er yfirleitt lagður ofan í grunninn á meðan hann er enn blautur, sjá tækniblað. Grunninn má líka nota til að fylla loftbólur og holur í yfirborði.

Velosit mælir með CP 201 undir RM 205, SR 207 og SC 242, og hann bætir viðloðun undir RM 202 og RM 203.

Vinnsla

Notkun er um 1,6 kg/m² á hvern mm og vinnslutíminn 45–60 mínútur við 23 °C. Undirlagið þarf að vera 5–35 °C. Eftir 28 daga er þrýstistyrkurinn 46 MPa.

Undirbúningur og val á viðgerðarmúr er á síðunni um steypuviðgerðir.

Þyngd Á ekki við
Umbúðir

20 kg poki

Tækniblað Velosit CP 201 (enska)

Sækja

EPD Velosit CP 201

Sækja
Velosit CP 201 viðloðunargrunnur og ryðvörn í 20 kg poka
Bindigrunnur og ryðvörn – Velosit CP 201

9.878 kr.

Setja í körfu This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page