-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Viðgerðarmúr, súlfatþolinn – Velosit SR 207
8.290 kr.
Súlfatþolinn, trefjastyrktur viðgerðarmúr í flokki R4 fyrir steypu í fráveitu, brunnum, skólphreinsistöðvum og öðru ætandi umhverfi.
- 6–100 mm lag í einni umferð
- 45 MPa eftir 28 daga, flokkur R4
- Þolir súlfat
- 25 kg poki
Þú gætir einnig þurft
Velosit SR 207 viðgerðarmúr
Súlfat í skólpi og jarðvegi brýtur niður venjulega steypu og viðgerðarmúr. SR 207 er gerður til að þola það og er því notaður í brunna, fráveitulagnir, hreinsilaugar og aðra fleti sem eru í snertingu við skólp. Hann hentar líka í almennar viðgerðir á svölum, bitum og framhliðum.
Utan fráveitu er RM 205 oftast notaður í djúpar viðgerðir.
Vinnsla
Hrærður með um 12 % vatni (3 l í poka), mest 16 % ef þörf er á þjálli blöndu. Steypan er grunnuð með CP 201 áður en múrinn er lagður. Vinnslutíminn er um 30 mínútur.
Undirbúningur, grunnur og samanburður á öllum viðgerðarefnunum er á síðunni um steypuviðgerðir.
| Þyngd | 25 kg |
|---|---|
| Þykkt | 6–100 mm |
| Styrkur | 45 MPa eftir 28 daga |
| Notkun | Inni og úti |
| Vinnslutími | 30 mín við 23 °C |
| Efnisnotkun | Um 45 kg/m² í 25 mm lagi |
| Flokkur | R4 (EN 1504-3) |
| Kornastærð | Mest 4 mm |
| Vatn | Um 3 l í 25 kg poka |
| Grunnur | CP 201 |
| Umbúðir | 25 kg |






