Íblöndunarefni, latex – Velosit LE 910

15.980 kr.

Sementsþolin latex-blanda sem er hrærð út í múr, steypu og flísalím. Hún eykur viðloðun, teygju og vatnsheldni og dregur úr rýrnun. LE 910 er líka notað þynnt sem grunnur og í viðloðunarlag.

  • Í múr: 1:2 með vatni eða óblandað
  • Sem grunnur: allt að 1:5 með vatni
  • Hvítt og án leysiefna
  • 10 kg brúsi

Velosit LE 910

LE 910 er þykkni sem er blandað í blönduvatnið. Hlutfallið ræður eiginleikunum: því minna sem það er þynnt, því meiri verður viðloðunin og teygjan. Múr með LE 910 dregur minna í sig af vatni og ver betur gegn salti.

Notkun og blöndunarhlutföll

Grunnur. Þynnt allt að 1:5 með vatni og borið á með pensli eða rúllu á steypu, múr og gifs. Bindur laus og gljúp yfirborð.

Viðloðunarlag. Þynnt 1:2 með vatni og hrært saman við sement og sand (1:1 til 1:3), 2–4 kg/m². Viðgerðarmúrinn er lagður blautt í blautt.

Grófhúð. Þynnt 1:2 og blandað með sandi, mest 4 mm. Kastað á flötinn svo hann þekist um það bil til hálfs.

Íblöndun í múr. Frá 1:2 upp í óblandað. Við 1:2 eykst styrkurinn.

Flísalím. 1:4 í blönduvatnið gefur flokk S1 og 1:1 flokk S2.

Vinnsla

Undirlagið þarf að vera 5–35 °C. Grunnurinn þornar á 2–3 klukkustundum við 23 °C. LE 910 geymist í 24 mánuði í lokuðum umbúðum við 5–25 °C og má ekki frjósa.

Til að binda viðgerðarmúr við steypu er einnig til tilbúinn sementsgrunnur, Velosit CP 201. Fleiri grunnar eru í flokknum grunnar og íblöndunarefni.

Umbúðir

10 kg

Tækniblað Velosit LE 910 (enska)

Sækja

Öryggisblað Velosit LE 910 (enska)

Sækja

EPD Velosit LE 910

Sækja
Velosit LE 910 latex-íblöndunarefni 10 kg brúsi
Íblöndunarefni, latex – Velosit LE 910

15.980 kr.

Setja í körfu