Viðgerðarmúr, grófur – Velosit RM 205

6.175 kr.

Grófur, trefjastyrktur viðgerðarmúr í flokki R4 fyrir djúpar skemmdir og burðarhluta, t.d. svalir, bita, súlur og brýr.

  • 6–100 mm lag í einni umferð, líka í loft
  • 50 MPa eftir 28 daga, flokkur R4
  • Vatnsfælinn og með ryðvörn fyrir járnabindingu
  • 25 kg poki
Vörunúmer: Vel-RM205 Flokkar: , Lausn: Birgi:

Velosit RM 205 viðgerðarmúr

RM 205 er ætlaður þar sem steypa hefur skemmst djúpt, t.d. vegna ryðgaðrar járnabindingar, og byggja þarf upp þversnið aftur. Hann er í hæsta flokki EN 1504-3 (R4) og þolir koltvísýring, klóríð, súlfat og veðrun. Einnig má nota hann sem smásteypu (e. micro-concrete) í stærri holur.

Fyrir grunnar yfirborðsviðgerðir niður í 0 mm er RM 202 hentugri, og í fráveitu og súlfatríku umhverfi SR 207.

Vinnsla

Hrærður með 11–16 % hreinu vatni (2,8–4,0 l í poka). Steypan er grunnuð með CP 201 viðloðunargrunni áður en múrinn er lagður. Vinnslutíminn er um 60 mínútur.

Undirbúningur, grunnur og samanburður á öllum viðgerðarefnunum er á síðunni um steypuviðgerðir.

Þyngd 25 kg
Þykkt

6–100 mm

Styrkur

50 MPa eftir 28 daga

Notkun

Inni og úti

Vinnslutími

60 mín við 23 °C

Efnisnotkun

Um 45 kg/m² í 25 mm lagi

Flokkur

R4 (EN 1504-3)

Vatn

2,8–4,0 l í 25 kg poka

Grunnur

CP 201

Umbúðir

25 kg

Tækniblað / Data Sheet- Enska / English

Sækja

TDS - Rm-205-English

Öryggisblað / MSD - Enska / English

Sækja

Öryggisblað fyrir Vel-RM205 á Ensku MSD Safety datasheet in English

Eniromental product declaration - EPD

Sækja

Enviromental Product Decloration EPD In english

Skoðaðu einnig þessa valkosti

Velosit RM 205 grófur viðgerðarmúr í 25 kg poka
Viðgerðarmúr, grófur – Velosit RM 205

6.175 kr.

Setja í körfu