-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Mótunarmúr (ílögn) – Velosit SC 242
4.495 kr.
Hraðharðnandi ílögn, oft kölluð mótunarmúr eða þurrmúr, fyrir gólf inni og úti. Hægt er að leggja hana beint á steypu eða ofan á einangrun og dúk.
- 10–100 mm lag
- Gangfær eftir 4 klst.
- 51 MPa eftir 28 daga, flokkur C50-F7
- 20 kg poki
Þú gætir einnig þurft
Velosit SC 242 ílögn
SC 242 er tilbúin, trefjastyrkt blanda sem er hrærð með litlu vatni og lögð út með rétskeið, eins og hefðbundin ílögn. Hún rýrnar lítið og tapar ekki styrk í vatni, svo hún hentar líka úti og á svölum. Hún er notuð í nýjar ílagnir og viðgerðir á steyptum gólfum.
Lagþykkt
- Límd við steypu: 10–100 mm
- Á einangrun eða dúk: minnst 25 mm fyrir punktálag undir 2 kN/m² og minnst 65 mm fyrir allt að 10 kN/m²
Vinnsla
Hrærð með 6–8 % vatni (1,2–1,6 l í poka). Á steypu er grunnað með CP 201. Undirlagið þarf að vera 10–35 °C og verja þarf ílögnina gegn sól, vindi og hitasveiflum fyrsta sólarhringinn. Ekki þarf að vökva hana.
Fyrir þunnar, sjálfjafnandi ílagnir er SC 244 flot betri kostur. Undirbúningur, grunnur og samanburður á öllum viðgerðarefnunum er á síðunni um steypuviðgerðir.
| Þyngd | 20 kg |
|---|---|
| Þykkt | 10–100 mm |
| Styrkur | 51 MPa eftir 28 daga |
| Notkun | Inni og úti |
| Gönguhæft | 4 klst. |
| Vinnslutími | 45 mín við 23 °C |
| Efnisnotkun | Um 19,7 kg/m² í 10 mm lagi |
| Hraðharnandi | Já |
| Flokkur | C50-F7 (EN 13813) |
| Brunaflokkur | A1 |
| Vatn | 1,2–1,6 l í 20 kg poka |
| Grunnur | CP 201 á steypu |
| Umbúðir | 20 kg |





