Akrýlgrunnur – Velosit PA 911

Price range: 7.750 kr. through 13.895 kr.

Leysiefnalaus akrýlgrunnur undir flot, flísalím, múr og ílagnir. Hann lokar rakadrægu undirlagi svo það dregur ekki vatnið úr efninu sem fer ofan á, og bætir viðloðun. Hann er líka notaður til að rykbinda gólf á verktíma.

  • Á steypu, múr, gifs og gifstrefjaplötur, inni og úti
  • Þynntur með allt að 3 hlutum vatns
  • Um 0,03–0,1 l/m²
  • Þornar á 1–2 klst.

Velosit PA 911 múrgrunnur

PA 911 er hvítur, lyktarlítill akrýlgrunnur án leysiefna. Hann er borinn á áður en lagt er flot, flísalím eða múr og jafnar rakadrægni undirlagsins, svo efnið sem fer ofan á harðnar jafnt og loðir vel.

Blöndun og ásetning

Grunnurinn er þynntur með vatni eftir því hve mikið undirlagið dregur í sig, mest 1 hluti grunnur á móti 3 hlutum vatns. Það hlutfall er algengast á steypu, en á þéttara undirlag er hann minna þynntur og jafnvel óþynntur, t.d. á timbur. Grunninum er kústað eða rúllað ríkulega á svo undirlagið drekki hann vel í sig, og mjög rakadrægt eða opið undirlag er grunnað tvisvar. Hann þarf að þorna í 1–2 klst. við 23 °C áður en lagt er yfir.

Hvaða grunnur á við?

Við mælum alltaf með að grunna áður en flot eða múr er lagt. Sjá líka Velosit SC 244 flot.

Notkun

Inni og úti

Efnisnotkun

0,03–0,1 l/m²

Blöndun

Allt að 1 hluti grunnur á móti 3 hlutum vatns

Þornunartími

1–2 klst. við 23 °C

Undirlag

Steypa, múr, gifs og gifstrefjaplötur

Hitastig

5–35 °C

Litur

Hvítur

Umbúðir

10 kg, 5 Kg

Tækniblað Velosit PA 911 (enska)

Sækja

Tækniblað/

Velosit PA 911 múrgrunnur, akrýlgrunnur í 10 kg brúsa
Akrýlgrunnur – Velosit PA 911

Price range: 7.750 kr. through 13.895 kr.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page