-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Þéttimúr, kristallandi – Velosit CW 111
9.569 kr.
Hafðu samband fyrir afhendingartíma
Kristallandi þéttimúr sem er borinn á steypu og smýgur inn í hana. Kristallar myndast í háræðum steypunnar, svo þéttingin verður hluti af steypunni sjálfri.
- Þolir 13 bar vatnsþrýsting, bæði að framan og aftan
- Lokar kyrrstæðum sprungum allt að 0,4 mm
- Kústað, sprautað eða stráð í nýja steypu
- 25 kg poki
Þú gætir einnig þurft
Velosit CW 111
CW 111 er notaður á kjallara og bílakjallara, lyftugryfjur, vatnstanka, drykkjarvatnsmannvirki, fráveitu og göng. Vegna þess að hann þolir sama þrýsting að aftan og framan má bera hann innan á vegg þegar ekki er hægt að komast að honum utan frá.
Munurinn á CW 111 og WP 101 er að WP 101 myndar lag ofan á steypunni en CW 111 þéttir steypuna sjálfa. Á veggi sem hreyfast er teygjanlegi WP 120 betri kostur, og leka í sprungum þarf að stöðva fyrst með inndælingu, sjá lekaþéttingu.
Velosit mælir með að gera fyrst við skemmda steypu með RM 211, sem er líka kristallandi, og þétta svo með CW 111. Punktleka má stöðva fyrst með hraðsementinu PC 221.
Vinnsla
Kústaður í tveimur umferðum, 0,8 kg/m² og 0,7 kg/m², með 60–90 mínútum á milli. Sprautaður er hann 1,5 kg/m² og stráð í nýja steypu 1,2 kg/m². Undirlagið þarf að vera 5–35 °C og í heitu og þurru veðri er honum haldið rökum í 4 klst.
| Vatnsþrýstingur | 13 bar að framan og aftan |
|---|---|
| Lokar sprungum | Allt að 0,4 mm (kyrrstæðar) |
| Efnisnotkun | Kústað 0,8 + 0,7 kg/m², sprautað 1,5 kg/m² |
| Brunaflokkur | A1 |
| Undirlagshiti | 5–35 °C |
| Umbúðir | 25 kg |







