-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Hraðsement til að stöðva leka – Velosit PC 221
7.715 kr.
Hafðu samband fyrir afhendingartíma
Hraðsement sem harðnar á 1–2 mínútum. Það er notað til að stöðva punktleka í steypu, t.d. í kjallaraveggjum, vatnstönkum og lögnum, og til að festa kamba, ankeri og festingar.
- Harðnar á 1–2 mínútum, 12 MPa eftir 1 klst.
- Þolir 130 m vatnssúlu
- Blandað 3:1 með vatni, í höndum
- 12 kg fata
Þú gætir einnig þurft
Velosit PC 221
PC 221 er hraðharðnandi sement með kristallandi virkni. Til að stöðva leka er blandan mótuð í kúlu og þrýst inn í opið þar til hún harðnar. Hún er líka notuð í litlar viðgerðir, til að festa kamba og ofnafestingar og sem flýtir í aðra viðgerðarmúra frá Velosit.
Eftir að lekinn hefur verið stöðvaður má þétta flötinn með CW 111 eftir 10 mínútur. Fyrir leka í sprungum og vinnuskilum er inndæling oft betri kostur, sjá lekaþéttingu.
Vinnsla
Blandað í höndum, 3 hlutar af dufti á móti 1 hluta af vatni. Vinnslutíminn er um 1 mínúta, svo aðeins er blandað því sem notað er strax. Ekki þarf að vökva eftir á. Undirlagið þarf að vera 5–35 °C.
| Hörðnun | 1–2 mínútur |
|---|---|
| Styrkur | 12 MPa eftir 1 klst., yfir 50 MPa eftir 28 daga |
| Vatnsþrýstingur | 130 m vatnssúla (EN 12390-8) |
| Blöndun | 3 hlutar duft á móti 1 hluta vatns |
| Flokkur | R2 (EN 1504-3) |
| Umbúðir | 12 kg |


