Viðgerðarmúr, fínn – Velosit RM 202

6.999 kr.

Fínn, trefjastyrktur viðgerðarmúr fyrir yfirborðsskemmdir á steypu, múr og náttúrusteini. Hann er þjáll og loðir vel, svo hann hentar sérstaklega í loft og lóðrétta fleti.

  • 0–100 mm á veggi, allt að 50 mm í loft
  • 56 MPa þrýstistyrkur eftir 28 daga, flokkur R3
  • 40 mínútna vinnslutími
  • 25 kg poki
Vörunúmer: Vel-RM202 Flokkar: , Lausn: Birgi:

Velosit RM 202 viðgerðarmúr

RM 202 er notaður til að gera við holur, flögnun og ójöfnur á steypu, múr og steini, og til að leggja þunnt yfirborðslag á veggi, svalir og framhliðar. Hann rýrnar lítið og nær styrk hratt: 15 MPa eftir 4 klst. og 31 MPa eftir sólarhring.

Hvenær RM 202 og hvenær annað?

  • Þarf viðgerðin að komast fljótt í notkun? RM 203 harðnar mun hraðar.
  • Djúpar skemmdir eða burðarhlutar? RM 205 er grófari og í flokki R4.

Vinnsla

Hrærður með 15–18 % hreinu vatni (3,8–4,5 l í poka). Grunnað er með CP 201 eða þunnu lagi af sjálfum múrnum. Í heitu og þurru veðri er viðgerðinni haldið rakri í 3–4 klst.

Undirbúningur, grunnur og samanburður á öllum viðgerðarefnunum er á síðunni um steypuviðgerðir.

Þyngd 25 kg
Þykkt

0–100 mm (loft mest 50 mm)

Styrkur

56 MPa eftir 28 daga

Notkun

Inni og úti

Vinnslutími

40 mín við 23 °C

Efnisnotkun

Um 10 kg/m² í 6 mm lagi

Flokkur

R3 (EN 1504-3)

Vatn

3,8–4,5 l í 25 kg poka

Umbúðir

25 kg

Tækniblað / Data Sheet- Enska / English

Sækja

TDS - Rm-202-English

Öryggisblað / MSD - Enska / English

Sækja

Öryggisblað fyrir Vel-RM202 á Ensku MSD Safedty datasheet in English

Enviromental Product Decleration

Sækja

EPD In english

Skoðaðu einnig þessa valkosti

RM 202 viðgerðarmúr, trefjastyrktur, 25 kg
Viðgerðarmúr, fínn – Velosit RM 202

6.999 kr.

Setja í körfu