-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
PMMA-spartl fyrir kantprófíla og niðurföll – Triflex Cryl Spachtel
Price range: 49.000 kr. through 129.900 kr.
Tvíþátta PMMA-spartl frá Triflex til að jafna ójöfnur í undirlagi, til dæmis að niðurföllum og kantprófílum, og fylla í skaranir á flísdúk og dældir áður en slitlag og lokaumferð eru lögð.
- Harðnar með Triflex Catalyst
- Gangfært og yfirmálanlegt eftir um 1 klst. við 20 °C
- Um 1,4 kg/m² á hvern mm
- 5 og 15 kg fötur, grátt (RAL 7032)
Þú gætir einnig þurft
Triflex Cryl Spachtel
Cryl Spachtel er tvíþátta, litað spartl úr PMMA-kvoðu, leysiefnalaust og fljótharðnandi. Það er notað til að jafna ójöfnur í undirlaginu, til dæmis að niðurföllum og kantprófílum, og til að fylla í skaranir á flísdúknum og dældir í Triflex-kerfum, svo yfirborðið verði slétt áður en slitlag og lokaumferð eru lögð. Það hentar líka í viðgerðir.
Vinnsla
Undirlagið þarf að vera burðarhæft, þurrt og laust við laus efni og annað sem dregur úr viðloðun. Viðloðun er prófuð á staðnum og útiloka þarf raka sem kemur að neðan. Hiti undirlags og lofts á að vera 0–35 °C og yfirborðið minnst 3 °C yfir daggarmarki. Í lokuðum rýmum þarf öfluga loftræstingu.
Spartlið er hrært vel, herðinum blandað út í á hægum snúningi án kekkja og hrært í minnst 2 mínútur. Síðan er efninu hellt í annað ílát og hrært aftur. Vinnslutími er um 10 mínútur við 20 °C, svo aðeins er blandað því sem nær að vinnast.
| Hiti | Herðir á 15 kg spartls |
|---|---|
| 0–25 °C | 0,90 kg (6 %) |
| 25–35 °C | 0,60 kg (4 %) |
Tæknigögn
| Gerð | Tvíþátta PMMA-spartl, leysiefnalaust |
| Efnisþörf | Um 1,40 kg/m² á hvern mm á sléttum fleti |
| Vinnslutími | Um 10 mín. við 20 °C |
| Regnþolið | Eftir um 30 mín. við 20 °C |
| Gangfært og yfirmálanlegt | Eftir um 1 klst. við 20 °C |
| Vinnsluhiti | 0–35 °C, minnst 3 °C yfir daggarmarki |
| Litur | Grár, RAL 7032 |
| Geymsla | Um 6 mánuðir óopnað á köldum, þurrum og frostlausum stað, ekki í beinu sólarljósi |
Meira um kerfin á síðunni um Triflex svalaþéttingu.
| Umbúðir | 15 kg, 5 kg |
|---|


