-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Lokaumferð, lituð PMMA – Triflex Cryl Finish 205
Price range: 59.900 kr. through 96.489 kr.
Lituð PMMA-lokaumferð á svalakerfi Triflex. Hún gefur flötinum lit, eykur slitþol og bindur flögur eða kvartssand sem stráð er í blauta umferðina.
- 0,50–0,70 kg/m²
- Regnheld eftir um 30 mín. við 20 °C
- Vinnsluhiti 0 til +35 °C
- 10 kg fata. Allir litir Triflex fást
Þú gætir einnig þurft
Triflex Cryl Finish 205
Finish 205 er síðasta lagið í BFS, BTS-P og TSS. Hún er silkigljáandi, ver slitlagið gegn efnum og veðri og er UV-þolin. Algengast er að strá Micro Chips-flögum í hana blauta, minnst 0,05 kg/m².
Hálkuvörn
Fínum kvartssandi er stráð í til að draga úr hálku. Á tröppur og hallandi fleti er mælt með grófari sandi, minnst 7 kg/m², og þá þarf minnst 0,70 kg/m² af Finish 205 yfir.
Litir
Í Chips Design-litakorti Triflex eru 52 litir. Við útvegum alla liti. Quartz 01, Slate 03 og Malachite 04 eru yfirleitt til á lager og aðra liti sérpöntum við. Litir í hærri verðflokki, t.d. Opal og Sand, eru dýrari. Litakortin eru hér á síðunni. Litir á skjá og í prentuðu korti geta vikið aðeins frá raunverulegum lit.
Vinnsla
Í 10 kg fötu fara 0,60 kg af herði við 0–5 °C, 0,40 kg við 5–15 °C og 0,20 kg við 15–35 °C. Pottlífið er um 15 mínútur og fullt þol næst eftir um 2 klukkustundir við 20 °C.
Viljir þú glæra, silkimatta yfirferð ofan á lit er til Cryl Finish Satin. Sjá líka síðuna um svalaþéttingu með Triflex.
| Litur | Quartz 01 (7035), Slate 03 (7043), Malachite 04 (7073), Pebble Grey (7032), Stone Grey (7030), Granite 03 (7094), Opal 02 (5092), Sand 02 (7090) |
|---|


