Inndælingarefni, freyðandi – Arcan HydroBloc 620 Integral

Price range: 9.490 kr. through 35.995 kr.

Einsþátta PU-inndælingarefni fyrir rakar sprungur, vinnuskil og holrými. Engin blöndun og enginn vinnslutími sem rennur út: efnið helst fljótandi í dælunni og hvarfast fyrst þegar það kemst í snertingu við raka.

  • Myndar fína, seiga froðu sem skríður inn í smæstu glufur
  • Froðan virkjast ekki aftur. Þar sem sprungan getur hreyfst eða vatn komist að síðar hentar HydroBloc 575, sem helst bólgnandi
  • Harðnar á um 10 mínútum
  • Loðir vel við blauta steypu
  • Fæst í 1,2 kg og 6 kg

Vefur framleiðanda · Myndband

Þú gætir einnig þurft

Inndælingarnippill, standard Price range: 210 kr. through 590 kr.
Veldu
Inndælingarnippill með pönnuhaus Price range: 275 kr. through 590 kr.
Veldu
Varnarhúð við inndælingu – Arcan Trennfix 480 Price range: 18.750 kr. through 32.500 kr.
Veldu
Borholumúr eftir inndælingu – Arcan SealFix 930 Price range: 3.900 kr. through 24.980 kr.
Veldu

Hvað er HydroBloc 620 Integral?

HydroBloc 620 Integral frá Arcan er einsþátta pólýúretankvoða sem notuð er til að þétta sprungur, vinnuskil og holrými í rakri eða blautri steypu. Herðirinn er innbyggður í efnið, svo það þarf ekki að blanda það. Það helst fljótandi í dælunni, en um leið og það kemst í snertingu við raka í sprungunni þenst það út í fína, seiga froðu og þrýstir sér inn í smæstu glufur og holur.

Efnið er vatnsþétt en er ekki ætlað til að stöðva rennandi vatn. Til þess eru HydroBloc 510 Integral og HydroFlex 622.

Notkun

  • Sprungur og vinnuskil í rakri steypu
  • Steypuhreiður og önnur gljúp svæði
  • Ekki í inndælingarslöngur

Vinnsla

  • Búnaður þarf að vera þurr. Snefill af vatni í dælu eða slöngum lætur efnið hvarfast
  • Lokið opnum umbúðum strax
  • Til að flýta hvarfinu má bæta við 2–3% af HydroCat 577

Tæknigögn

  • Seigja við 20 °C: um 180 mPa·s
  • Froðumagn: allt að um 300%
  • Uppfyllir EN 1504-5 og er prófað samkvæmt þýsku KTW-leiðbeiningunum, svo nota má það í snertingu við neysluvatn
  • Geymist í minnst 6 mánuði í lokuðum upprunalegum umbúðum

Öryggi

  • Notið hanska, hlífðargleraugu og öndunarhlíf
  • Getur valdið ertingu í húð og augum og ofnæmis- eða astmaeinkennum við innöndun
  • Berist efnið í augu: skolið varlega með vatni í nokkrar mínútur, fjarlægið snertilinsur ef hægt er og leitið læknis
  • Geymist á læstum stað þar sem börn ná ekki til

Öryggisblað á íslensku

Nánar um lekaþéttingu og val á efni á síðunni um lekaþéttingu.

Umbúðir

1,2kg, 6kg

Tækniblað / Data Sheet- Enska / English

Sækja

TDS - English

Öryggisblað / MSD - Íslenska

Sækja

Öryggisblað á Íslensku

Skoðaðu einnig þessa valkosti

Arcan HydroBloc 620 Integral inndælingarefni
Inndælingarefni, freyðandi – Arcan HydroBloc 620 Integral

Price range: 9.490 kr. through 35.995 kr.

Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page