-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Iðnaðarflot, slitsterkt – Velosit SL 507
9.980 kr.
Hafðu samband fyrir afhendingartíma
Mjög slitsterkt, sjálfjafnandi flot sem er endanlegt yfirborð á iðnaðargólfum, lagerum og verkstæðum. Það er ljósgrátt, nálægt lit steypu, og tekur umferð lyftara eftir 6 klst.
- 6–38 mm lag í einni umferð
- Gangfært eftir 3 klst., lyftarar eftir 6 klst.
- CT-C50-F8-A3, slit 2,6 cm³/50 cm² (Böhme)
- Sérpöntun, 20 kg poki
Þú gætir einnig þurft
Velosit SL 507
SL 507 er ætlað gólfum þar sem flotið sjálft er yfirborðið og þarf að þola mikið slit, t.d. af lyfturum og vögnum. Það nær 20 MPa eftir 4 klst. og yfir 50 MPa eftir 28 daga, og er í slitflokki A3 samkvæmt EN 13813. Það er notað inni og úti, til að jafna steypt gólf og gera við yfirborðsskemmdir.
Munurinn á SL 507 og SL 503 er að SL 507 er slitsterkara og tekur lyftara mun fyrr, eftir 6 klst. í stað 16. SL 503 er til á lager en SL 507 er sérpantað. Hafðu samband fyrir verð og afhendingartíma.
| Lagþykkt | 6–38 mm |
|---|---|
| Gangfært | Eftir 3 klst., lyftarar eftir 6 klst. |
| Flokkur | CT-C50-F8-A3 (EN 13813) |
| Slitþol | 2,6 cm³/50 cm² (Böhme) |
| Efnisnotkun | Um 1,75 kg/m² á hvern mm |
| Litur | Ljósgrár |
| Grunnur | PA 911 eða PR 303 |
| Afhending | Sérpöntun |
| Umbúðir | 20 kg |




