Vínyldúkur með textílbaki – Beauflor Blacktex

Mjúkur og vatnsheldur vínyldúkur frá Beauflor fyrir eldhús, baðherbergi, stofur og ganga, á heimilum og í leiguíbúðum.

  • Rúllur 2, 3 og 4 m á breidd
  • Slitflokkur 23 á heimilum, 32 í atvinnuhúsnæði
  • Textílbak, má leggja án líms upp í 35 m²
  • Dregur úr högghljóði um 15 dB
  • Hálkuvörn R10
  • 10 ára ábyrgð í atvinnuhúsnæði
  • 56 viðar- og steináferðir
  • Frí mæling og tilboð án skuldbindingar
Flokkar: , Lausn: Birgi:

Beauflor Blacktex – vínyldúkur fyrir heimili

Blacktex er vínyldúkur frá belgíska framleiðandanum Beauflor með svörtu textílbaki og trefjaglerstyrkingu. Bakið gerir dúkinn stöðugan, svo á gólf allt að 35 m² má leggja hann án líms, meðal annars yfir gamalt gólfefni. Hann er vatnsheldur og hentar í eldhús, baðherbergi, stofur, svefnherbergi og ganga.

Dúkurinn er 2,8 mm þykkur með 0,40 mm slitlagi og PU-lakki sem verndar gegn blettum og auðveldar þrif. Hann er í slitflokki 23 fyrir mikið álag á heimilum og 32 fyrir atvinnuhúsnæði, svo hann þolir líka leiguíbúðir og verslanir. Hann dregur úr högghljóði um 15 dB, er með hálkuvörn R10 og hentar á gólfhita. Beauflor veitir 10 ára ábyrgð á honum í atvinnuhúsnæði.

Blacktex fæst í 56 viðar-, stein- og steypuáferðum og í 2, 3 og 4 m breiðum rúllum, svo oftast er hægt að leggja herbergi án samskeyta. Aðrar línur frá Beauflor útvegum við eftir pöntun.

Litir og áferðir

Í myndasafninu eru nokkrar áferðir. Við sýnum allt úrvalið þegar við komum að mæla.

Tæknigögn

Framleiðandi Beauflor (Belgía)
Gerð Vínyldúkur með textílbaki og trefjagleri
Heildarþykkt 2,8 mm
Slitlag 0,40 mm, PU-lakk
Þyngd 1.950 g/m²
Rúllubreidd 2, 3 og 4 m (fer eftir áferð)
Slitflokkur (EN ISO 10874) 23 heimili, 32 atvinnuhúsnæði, 41 iðnaður
Brunaflokkur Bfl-s1
Hálkuvörn R10
Högghljóðdeyfing 15 dB
Varanleg dæld ≤ 0,20 mm
Gólfhiti Hentar
Útgufun A+

Frí mæling og tilboð. Við komum, mælum rýmið án endurgjalds og sendum tilboð án skuldbindingar í dúk og lögn, með afrifi og frágangi. Hafðu samband eða hringdu í 420 4010.

Litir

Casali 619M, Beton Cire 906M, Laurel Oak 199M, Laurel Oak 663L, Oakland 219M, Pamplona 126L, Tasmanian Oak 669D, Gambel Oak 226M

Skoðaðu einnig þessa valkosti