Vínyldúkur, hljóðdempandi – Beauflor Phoni Xtreme

Slitsterkur vínyldúkur frá Beauflor með mjúku froðubaki sem dregur úr högghljóði. Fyrir skóla, heilbrigðisstofnanir, skrifstofur, verslanir og heimili.

  • Dregur úr högghljóði um 19 dB
  • Slitlag 0,70 mm, slitflokkur 34 og 42
  • Hálkuvörn R10
  • 10 ára ábyrgð í atvinnuhúsnæði
  • Rúllur 2–4 m á breidd, 34 áferðir
  • Frí mæling og tilboð án skuldbindingar
Flokkar: , Lausn: Birgi:

Beauflor Phoni Xtreme – hljóðdempandi vínyldúkur

Phoni Xtreme er vínyldúkur frá belgíska framleiðandanum Beauflor sem sameinar mikið slitþol og hljóðvist. Slitlagið er 0,70 mm, um tvöfalt þykkara en í venjulegum heimilisdúk, og dúkurinn er í slitflokki 34 fyrir mjög mikið álag í atvinnuhúsnæði og 42 fyrir iðnað. Mjúkt froðubak (Comfort Backing) dregur úr högghljóði um 19 dB, sem skiptir máli í fjölbýlishúsum, skólum og á heilbrigðisstofnunum þar sem fótatak berst á milli hæða.

Yfirborðið er með Premium Coating sem ver gegn rispum og blettum og auðveldar þrif, og bakteríuvörn sem hindrar myglu. Dúkurinn er með hálkuvörn R10 og lága útgufun. Beauflor veitir 10 ára ábyrgð á honum í atvinnuhúsnæði.

Phoni Xtreme hentar skólum, heilbrigðisstofnunum, hótelum, skrifstofum, verslunum, félagslegu húsnæði og heimilum. Hann fæst í 34 viðar-, stein- og mynstruðum áferðum og í 2–4 m breiðum rúllum, svo oftast er hægt að leggja herbergi án samskeyta. Sjá líka Beauflor Blacktex fyrir heimili.

Litir og áferðir

Í myndasafninu eru nokkrar áferðir. Við sýnum allt úrvalið þegar við komum að mæla.

Tæknigögn

Framleiðandi Beauflor (Belgía)
Gerð Vínyldúkur með froðubaki (Comfort Backing)
Heildarþykkt 3,35 mm
Slitlag 0,70 mm, Premium Coating
Rúllubreidd 2–4 m (fer eftir áferð)
Slitflokkur 34 atvinnuhúsnæði, 42 iðnaður
Hálkuvörn R10
Högghljóðdeyfing 19 dB
Ábyrgð 10 ár í atvinnuhúsnæði
Áferðir 34

Frí mæling og tilboð. Við komum, mælum rýmið án endurgjalds og sendum tilboð án skuldbindingar í dúk og lögn, með afrifi og frágangi. Hafðu samband eða hringdu í 420 4010.

Litir

Sunrise Oak 191L, Sunrise Oak 169L, Sunrise Oak 916M, Sunrise Oak 619M, Sara 769D, Sara 699D, Sara 139M, Roxanne 990L, Tweed 956D, Tweed 696D, Treviso 617L

Skoðaðu einnig þessa valkosti