-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Grunnpússning, trefjastyrkt – Alfix DuraPuds 810
6.490 kr.
Trefjastyrkt og sveigjanleg grunnpússning sem er lögð með glertrefjaneti yfir einangrun eða á undirlag þar sem hætta er á sprungum. Er alltaf kláruð með lokapússningu.
- 2–10 mm lag, inni og úti
- Mikil viðloðun og sveigjanleiki, dregur úr sprungumyndun
- Vatnsfráhrindandi, hleypir rakagufu í gegn, óbrennanleg
- 20 kg poki, grá
Þú gætir einnig þurft
Alfix DuraPuds 810
DuraPuds 810 er sementsbundin grunnpússning styrkt með trefjum. Hún er lögð með glertrefjaneti yfir einangrun úr steinull eða plasti (EPS/XPS) sem fest hefur verið með DuraPuds 830, og á undirlag þar sem hætta er á sprungum, t.d. steypu, hleðslu og léttsteypu. Pússningin er vatnsfráhrindandi, hleypir rakagufu í gegn og er óbrennanleg.
DuraPuds 810 er grunnpússning og er alltaf kláruð með lokapússningu, t.d. DuraPuds 804.
Vinnsla
Hver 20 kg poki er hrærður út í 4,0–4,8 l af hreinu, köldu vatni og hrærður aftur eftir nokkrar mínútur. Notkun er um 1,2 kg/m² á hvern mm. Unnið er við 5–25 °C.
Tæknigögn
- Vinnslutími: 3–4 klst. við 20 °C
- Þornunartími: 24 klst. við minnst 15 °C
- Fullhörðnuð: eftir 7 sólarhringa við minnst 15 °C
- Þrýstistyrkur: yfir 6 N/mm²
- Brunaflokkur: óbrennanleg
Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.
| Þyngd | 20 kg |
|---|


