Lím fyrir einangrun á útveggi – Alfix DuraPuds 830

9.150 kr.

Létt og sveigjanlegt sementsbundið lím sem festir einangrun úr steinull eða plasti (EPS/XPS) á steypu og hleðslu. Jafnar líka ójöfnur í veggnum áður en einangrað er.

  • Fyrir steinull og EPS/XPS
  • 3–30 mm lag, inni og úti
  • Léttara en hefðbundið lím og drjúgt
  • 18 kg poki, ljósgrátt

Þú gætir einnig þurft

Festidýflur fyrir einangrun – Pet 8/60 Price range: 25.275 kr. through 30.250 kr.
Veldu
Vörunúmer: ALF-5507 Flokkar: , Birgi:

Alfix DuraPuds 830

DuraPuds 830 er létt, sveigjanlegt og sementsbundið lím til að festa einangrunarplötur úr steinull eða plasti (EPS/XPS) á útveggi úr steypu, hleðslu, léttsteypu og frauðsteypu. Það er stíft og helst á veggnum, svo einnig má nota það til að fylla í dældir og jafna ójöfnur, allt að 30 mm á stöku stað og mest 10 mm í heilu lagi.

Límið er fyrsti hluti múrkerfisins. Yfir einangrunina kemur DuraPuds 810 grunnpússning með neti og síðan DuraPuds 804 lokapússning.

Vinnsla

Undirlagið þarf að vera burðarhæft og hreint. Mjög gleypið undirlag er grunnað með PlaneMix Primer þynntum 1:6. Hver 18 kg poki er hrærður út í 4,7–5,0 l af hreinu, köldu vatni.

  • Ójafnt undirlag: límið er borið í um 5 cm breiðan streng meðfram brún plötunnar og í þrjá lófastóra klatta á miðjuna. Límflöturinn þarf að vera minnst 50 %.
  • Slétt undirlag: límið er borið á allan bakflöt plötunnar með minnst 10 × 10 mm tenntum spaða.

Plöturnar eru lagðar í múrsteinsmynstri og þétt saman, án líms í samskeytum. Einangrunardyflar eru settir þegar límið hefur harðnað, yfirleitt eftir 1–2 sólarhringa. Unnið er í þurru veðri við 5–25 °C og ekki í beinni sól. Ekki er mælt með pússningu utanhúss að vetri.

Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.

Þyngd 18 kg

Tækniblað DuraPuds 830 (danska)

Sækja
Alfix DuraPuds 830, lím fyrir einangrun á útveggi, 18 kg
Lím fyrir einangrun á útveggi – Alfix DuraPuds 830

9.150 kr.

Setja í körfu