Rakaborði fyrir samskeyti – Velosit DB 830

25.647 kr.

Teygjanlegur og vatnsþéttur borði fyrir steypuskil, sprungur, samskeyti veggja og plötu og rör, aðallega utandyra og í kjöllurum. Lagður í WP 120 þéttimúr.

  • Teygist yfir 300 %
  • Þolir 5 bör (50 m vatnssúlu) frá yfirborðshlið, EN 12390-8
  • Þolir útfjólublátt ljós
  • 120 mm × 50 m rúlla
Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Birgi:

Velosit DB 830

DB 830 er blár, vatnsþéttur og mjög teygjanlegur borði sem er notaður með WP 120 þéttimúr, aðallega utandyra og í kjöllurum, t.d. á sökkla, kjallaraveggi, plötur og vatnstanka. Hann er lagður yfir skil milli steypuáfanga, sprungur, samskeyti veggja og plötu og við rör sem ganga í gegnum steypu. Borðinn er þunnur, svo flísaleggja má yfir hann ef þarf.

DB 830 þolir vatnsþrýsting eingöngu frá þeirri hlið sem hann er lagður á. Hreyfing í samskeytum má mest vera 0,5 mm.

Vinnsla

Undirlagið er sandblásið, kúlublásið eða háþrýstiþvegið (yfir 100 bör) og vætt þannig að það sé rakt en án vatns á yfirborði. Samskeyti breiðari en 6 mm eru fyrst fyllt með bakfyllingu eða teygjanlegu fúguefni. WP 120 er borið á með 4 mm tenntum spaða, borðanum þrýst strax í efnið og hann strokinn sléttur. Við rör er kragi klipptur úr borðanum og lagður í WP 120 sem penslað er á rörið og umhverfis það. Þegar efnið hefur tekið sig er borðinn yfirlagður með WP 120. Hiti undirlags þarf að vera 5–35 °C.

Ef vatn lekur virkt inn er það fyrst stöðvað, t.d. með PC 221.

Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.

Breidd

120 mm × 50 m

Velosit DB 830, þéttiborði fyrir samskeyti
Rakaborði fyrir samskeyti – Velosit DB 830

25.647 kr.

Setja í körfu This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page