Inndælingarslanga, fléttuð, 100 m – Izoservice

79.995 kr.

Fléttuð inndælingarslanga frá Izoservice sem lögð er í steypuskil áður en steypt er. Ef skilin leka síðar er dælt PU-kvoðu eða akrýlgeli inn í slönguna og efnið þéttir skilin eftir allri lengdinni.

  • Fléttuð og sveigjanleg, líka í kulda
  • Krossskurðir á 70 mm bili dreifa efninu jafnt
  • Mest 8 m í hverjum hluta
  • Seld í heilum 100 m rúllum

Sjá einnig festingar, klemmur og tengistykki og tilbúið uppsetningarsett.

Þú gætir einnig þurft

Fylgihlutir fyrir inndælingarslöngur – Izoservice Price range: 50 kr. through 720 kr.
Veldu
Inndælingarefni, freyðandi – Arcan HydroBloc 620 Integral Price range: 9.490 kr. through 35.995 kr.
Veldu
Inndælingarefni, varanlega vatnsbólgnandi – Arcan HydroBloc 575 Integral Price range: 20.190 kr. through 39.950 kr.
Veldu

Hvað er inndælingarslanga?

Inndælingarslanga er gataslanga sem lögð er í steypuskil, til dæmis milli botnplötu og veggjar, áður en steypt er. Hún situr í steypunni þar til á þarf að halda. Ef skilin leka er inndælingarefni dælt inn í slönguna. Efnið fer út um götin eftir allri lengdinni, fyllir holrými og sprungur í skilunum og lokar leiðinni fyrir vatnið.

Notkun

  • Vinnuskil og steypuskil í kjöllurum, botnplötum og veggjum
  • Þétting með rörum og lögnum sem liggja í gegnum steypu

Uppsetning

Slangan er fest á eldri steypuna í skilunum með festingum á um 20 cm bili, þannig að hún liggi þétt að steypunni. Slöngur mega ekki liggja í kross og samsíða slöngur eiga að vera með um 15 cm bili. Hver hluti er mest 8 m langur. Í hvorn enda er tengd áfyllingarslanga sem leidd er út úr mótinu, svo hægt sé að dæla í slönguna og lofta hana eftir að steypt hefur verið.

Inndæling

Slangan hentar fyrir einsþátta og tvíþátta PU-kvoðu og akrýlgel. Fagefni selur inndælingarefni frá Arcan og inndælingarnippla og ráðleggur um val á efni.

Tæknigögn

Framleiðandi Izoservice (Póllandi)
Gerð Fléttuð inndælingarslanga (IZOPRESS H2)
Innra / ytra þvermál 5 / 11 mm
Götun Tvöföld göt, 8 mm krossskurðir á 70 mm bili
Hámarkslengd hluta 8 m
Inndælingarefni Einsþátta og tvíþátta PU-kvoða, akrýlgel
Umbúðir 100 m rúlla, 11,2 kg

Nánar um aðferðina á síðunni um lekaþéttingu.

Skoðaðu einnig þessa valkosti

Fléttuð inndælingarslanga frá Izoservice á 100 m rúllu
Inndælingarslanga, fléttuð, 100 m – Izoservice

79.995 kr.

Setja í körfu