Hraðsement til að stöðva leka – Velosit PC 221

7.715 kr.

Hafðu samband fyrir afhendingartíma

Hraðsement sem harðnar á 1–2 mínútum. Það er notað til að stöðva punktleka í steypu, t.d. í kjallaraveggjum, vatnstönkum og lögnum, og til að festa kamba, ankeri og festingar.

  • Harðnar á 1–2 mínútum, 12 MPa eftir 1 klst.
  • Þolir 130 m vatnssúlu
  • Blandað 3:1 með vatni, í höndum
  • 12 kg fata

Velosit PC 221

PC 221 er hraðharðnandi sement með kristallandi virkni. Til að stöðva leka er blandan mótuð í kúlu og þrýst inn í opið þar til hún harðnar. Hún er líka notuð í litlar viðgerðir, til að festa kamba og ofnafestingar og sem flýtir í aðra viðgerðarmúra frá Velosit.

Eftir að lekinn hefur verið stöðvaður má þétta flötinn með CW 111 eftir 10 mínútur. Fyrir leka í sprungum og vinnuskilum er inndæling oft betri kostur, sjá lekaþéttingu.

Vinnsla

Blandað í höndum, 3 hlutar af dufti á móti 1 hluta af vatni. Vinnslutíminn er um 1 mínúta, svo aðeins er blandað því sem notað er strax. Ekki þarf að vökva eftir á. Undirlagið þarf að vera 5–35 °C.

Hörðnun

1–2 mínútur

Styrkur

12 MPa eftir 1 klst., yfir 50 MPa eftir 28 daga

Vatnsþrýstingur

130 m vatnssúla (EN 12390-8)

Blöndun

3 hlutar duft á móti 1 hluta vatns

Flokkur

R2 (EN 1504-3)

Umbúðir

12 kg

Tækniblað Velosit PC 221 (enska)

Sækja

Öryggisblað Velosit PC 221 (enska)

Sækja

Bæklingur: kristölluð vatnsþétting Velosit (enska)

Sækja

EPD Velosit PC 221

Sækja
Velosit PC 221, hraðsement til að stöðva leka, 12 kg fata
Hraðsement til að stöðva leka – Velosit PC 221

7.715 kr.

Hafðu samband fyrir afhendingartíma

Setja í körfu