-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Þéttiborði, vatnsþenjanlegur, 50 m – Velosit WS 801
63.603 kr.
Þéttiborði sem þenst út þegar hann blotnar og þéttir steypuskil, samskeyti veggja og plötu og rör sem steypt er í kringum. Lagður á eldri steypu áður en steypt er að.
- Þenst allt að 1.000 % í vatni
- Þenslan gengur til baka og endurtekur sig
- Skolast ekki út eins og bentónít
- 5 × 20 mm, 50 m rúlla
Velosit WS 801
WS 801 er blár þéttiborði sem þenst út þegar hann kemst í snertingu við vatn. Hann er lagður í steypuskil, t.d. milli plötu og veggjar eða milli steypuáfanga, og við rör sem steypt er í kringum. Þegar vatn leitar inn í skilin þenst borðinn út og lokar þeim.
Þenslan hefst nokkrum klukkustundum eftir að borðinn blotnar, svo hann þenst ekki út þótt hann blotni rétt áður en steypt er. Í hreinu vatni þenst hann allt að 1.000 % og allt að 750 % í sjó. Þenslan gengur til baka þegar borðinn þornar og endurtekur sig eins oft og þarf. Ólíkt bentónítborðum skolast hann ekki út.
Vinnsla
Steypan sem borðinn er lagður á þarf að vera minnst 15 MPa, hrein og laus við mótaolíu og standandi vatn. Lím er borið á steypuna og borðanum þrýst ofan í það þar til límið kemur upp báðum megin. Borðinn er auk þess negldur með um 15 cm millibili. Hann er lagður minnst 50 mm frá brún og ekki notaður í veggi sem eru þynnri en 120 mm. Endar eru skornir á ská (45°) og lagðir saman án bils. Hiti undirlags þarf að vera 5–35 °C.
Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.




