-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Sýrupúður fyrir kalk, ryð og sementsslæðu – Alfix Syre A
2.500 kr.
Sýrupúður sem fjarlægir kalk, ryð og sementsslæðu af sýruþolnu yfirborði. Gefur ekki frá sér ætandi gufur og kemur í stað saltsýru innanhúss.
- Fyrir flísar, klinku, tígulstein og granít
- Leyst upp í vatni 1:6–1:20
- 1 kg dugar á 25–50 m²
- 1 kg fata
Alfix Syre A
Syre A er sérhreinsir í duftformi á súlfamínsýrugrunni. Hann fjarlægir kalk, ryð og sementsslæðu af sýruþolnu yfirborði, t.d. flísum, klinku, tígulsteini og graníti. Hreinsirinn gefur ekki frá sér ætandi gufur og hentar því innanhúss í stað saltsýru.
Ekki má nota Syre A á marmara eða glerung, og hann má ekki komast í snertingu við síubúnað, klórblandað sundlaugarvatn eða aðrar klórvörur. Ef óvíst er hvort flöturinn þolir sýru er prófað á litlum fleti fyrst.
Notkun
Syre A er leyst upp í vatni í hlutfallinu 1:6–1:20, eftir því hve mikið þarf að hreinsa. 1 kg dugar á 25–50 m².
Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.
| Umbúðir | 1 kg |
|---|


