Lakk á sjónflot – Alfix Top Coat Design

Price range: 19.490 kr. through 59.990 kr.

Einsþátta, vatnsborið og mjög matt lakk á sjónflot. Lokar yfirborðinu svo það verður auðveldara í þrifum, án þess að breyta útliti flotsins.

  • Innanhúss, í þurrum rýmum
  • 3 umferðir, alls um 0,35 l/m²
  • Minnst 3 klst. milli umferða, gangfært eftir sólarhring
  • Leysiefnalaust, áhöld hreinsuð með vatni

Kennslumyndband · Vefur framleiðanda

Vörunúmer: Á ekki við Flokkar: , Lausn: Birgi:

Alfix TopCoat Design – matt lakk á sjónflot

TopCoat Design er einsþátta, vatnsborið lakk úr akrýl- og pólýúretandreifu. Það er borið á sementsbundið flot sem á að standa sem gólfefni, svokallað sjónflot. Lakkið er nánast glært og mjög matt, svo flotið heldur útliti sínu, en yfirborðið verður þéttara og auðveldara að þrífa.

Lakkið er ætlað innanhúss í þurrum rýmum og fyrir álag eins og á heimilum. Þar sem álagið er meira, til dæmis í verslunum, þarf að reikna með tíðara viðhaldi.

Vinnsla

  1. Undirlagið þarf að vera fast, þurrt og laust við ryk og sementsslæðu. Raki í undirlagi má mest vera 85 % RH. Flotið er ekki pússað með filtpúða áður en lakkað er.
  2. Á sogandi undirlag er fyrst borinn PlaneMix Primer, þynntur 1:6.
  3. Brúsinn er hristur vel. Þegar grunnurinn er alveg þurr er fyrsta umferð borin á með málningarrúllu (8–10 mm hár) í jöfnu lagi, án polla.
  4. Önnur umferð kemur eftir minnst 3 klst. við 20 °C. Þriðja umferðin er valfrjáls og gefur þéttara yfirborð.
  5. Ekki er gengið á gólfið fyrr en sólarhring eftir síðustu umferð.

Hiti í lofti, gólfi og efni á að vera 15–25 °C. Áhöld eru hreinsuð með vatni áður en efnið þornar.

Efnisþörf

0,10–0,15 l/m² í umferð, alls um 0,35 l/m² í þremur umferðum. 10 lítrar duga því á um 28 m² með þremur umferðum.

Umhirða

Alfix mælir með að þvo gólfið tvisvar með Alfix Floor Care, í fyrsta lagi degi eftir lökkun og með minnst klukkustund á milli. Þvotturinn fyllir svitaholur og styrkir yfirborðið. Hlífðarmottur undir skrifborðsstóla, filttappar undir húsgögn og mottur við innganga lengja endinguna. Það sem hellist niður er þurrkað upp áður en það þornar.

Meira um flot og frágang á síðunni um flotun gólfa.

Tæknigögn

Gerð Einsþátta, vatnsborin akrýl- og pólýúretandreifa
Áferð Mjög matt, glært (gljái 0,5 / 2,4 / 1,9 við 20° / 60° / 85°)
Efnisþörf 0,10–0,15 l/m² í umferð, um 0,35 l/m² í 3 umferðum
Bið milli umferða Minnst 3 klst. við 20 °C
Gangfært Eftir 1 sólarhring við 20 °C
Vinnsluhiti 15–25 °C
Hámarksraki í undirlagi 85 % RH
Geymsla Minnst 12 mánuðir óopnað, við 5–30 °C
Vottun EMICODE (GEV)

Tækniblað / Data Sheet- Enska / English

Sækja

Öryggisblað Alfix ElastaCol-lím og grunna (danska)

Sækja
Alfix Top Coat Design – lakk á sjónflot
Lakk á sjónflot – Alfix Top Coat Design

Price range: 19.490 kr. through 59.990 kr.

Setja í körfu This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page