-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Inngangsmotta fyrir mikið álag – Geggus Top Clean STABIL
Sterkari álmotta frá Geggus fyrir fjölfarna innganga, inni og úti. Breiðari og þykkari prófílar en í TREND.
- Mottuhæð 12, 17 eða 22 mm
- Prófílar 29 mm breiðir, veggþykkt allt að 2,5 mm
- Í 22 mm hæð þolir hún innkaupakerrur og brettatjakka
- Innlegg: rifflað teppi, rákað gúmmí, burstar eða blanda
- Sérpöntun, afhending 3–5 vikur, verð eftir tilboði
Ertu að velja mottu? Sjáðu hreinsisvæðin þrjú, hvernig mottan situr í gryfju og hvaða motta hentar þínum inngangi →
Þú gætir einnig þurft
Geggus Top Clean STABIL
STABIL er fyrir innganga þar sem umferðin er mikil, til dæmis í verslunum, verslunarmiðstöðvum og opinberum byggingum. Prófílarnir eru 29 mm breiðir með allt að 2,5 mm veggþykkt, svo mottan er mun sterkari en TREND. Í 22 mm hæð þolir hún mikla umferð gangandi, innkaupakerrur og brettatjakka.
Þessi motta er hluti af mottukerfi frá Geggus. Á síðunni inngangsmottur frá Geggus er farið yfir hreinsisvæðin þrjú, mottugryfjuna og hvernig kerfin eru valin saman.
Eins og aðrar Top Clean-mottur er STABIL úr álprófílum með um 5 mm bili, svo óhreinindi og bleyta falla niður í gryfjuna. Gúmmí undir prófílunum dempar hljóð. Mottan er smíðuð eftir máli og henni má rúlla upp þegar gryfjan er hreinsuð.
Innlegg eftir svæðum
Rákað gúmmí og burstar skafa gróf óhreinindi af skónum og henta úti eða fremst í anddyri. Rifflað teppi dregur í sig raka og fín óhreinindi og hentar innst. Sköfu- og burstalistar inn á milli teppisins auka hreinsunina.
Hæð og rammi
Geggus mælir með að leggja mottuna í SPEZIAL-ramma, sem er 3 mm hærri en mottan.
| Mottuhæð | Rammi | Þyngd með teppi |
|---|---|---|
| 12 mm | 15 mm | 10,8 kg/m² |
| 17 mm | 20 mm | 13,3 kg/m² |
| 22 mm | 25 mm | 15,7 kg/m² |
Tæknigögn
| Prófílbreidd | 29 mm |
| Veggþykkt prófíls | Allt að 2,5 mm |
| Bil milli prófíla | Um 5 mm |
| Álag | Mikið |
| Brunaflokkur teppis | Cfl-s1 |
| Framleiðandi | Geggus, Þýskalandi |
Sérpöntun og tilboð
Mottur frá Geggus eru framleiddar eftir máli í Þýskalandi og afhentar 3–5 vikum eftir pöntun. Sendu okkur mál og mynd af innganginum og við gerum tilboð. Kaupandi eða verktaki hans staðfestir öll mál. Við útvegum líka efni til að jafna botninn í mottugryfjunni, sjá flotun gólfa.
Meira um mottukerfi, hreinsisvæðin þrjú og gryfjuna á síðunni um inngangsmottur frá Geggus.
| Mottuhæð | 12 mm, 17 mm, 22 mm |
|---|---|
| Innlegg | Rifflað teppi, Rákað gúmmí, Burstar, Teppi og sköfulisti, Teppi og burstalisti, Teppi og burstar, Teppi og gúmmí, Gúmmí og sköfulisti, Gúmmí og burstalisti, Gúmmí og burstar |
| Prófílbreidd | 29 mm |
| Álag | Mikið |
| Notkun | Inni og úti |











