-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Hvað er koltrefjastyrking?
Koltrefjastyrkingar (e. carbon fibre strengthening eða CFRP) eru burðarþolsstyrkingar þar sem koltrefjaborðar eða koltrefjadúkur eru límdir með epoxýlími á bita, plötur, súlur eða veggi. Trefjarnar taka við togkrafti sem burðarvirkið ræður ekki lengur við. Efnið er létt og aðeins 1–2 mm á þykkt, svo styrkingin sést varla og nær engin lofthæð tapast.
Fagefni er umboðsaðili S&P á Íslandi og hefur selt kerfið síðan 2023. Verkfræðistofur eins og Efla og Verkís hafa hannað styrkingar með því, og það hefur meðal annars verið notað í leikskólunum Brákaborg og Hlíð, við breytingar í Smáralind og á Landspítalanum í Fossvogi.
Hvenær þarf burðarþolsstyrkingu?
- Meira álag eða breytt notkun, t.d. þyngri vélar eða nýtt hlutverk húss
- Göt söguð í plötur eða burðarveggir fjarlægðir
- Tæring á járnabindingu
- Hönnunar- eða framkvæmdagallar
- Skemmdir eftir bruna, högg eða jarðskjálfta
- Til að minnka sprungur og svignun
Af hverju koltrefjastyrkingar?
Mikill styrkur, lítil þyngd
Togstyrkur C-Laminate borða er yfir 2.800 N/mm² en eðlisþyngdin aðeins 1,6 g/cm³, um fimmtungur af eðlisþyngd stáls.
Tærist ekki
Ólíkt stálplötum ryðgar koltrefjaefni ekki og þarf hvorki ryðvörn né viðhald eftir uppsetningu.
Hverfur undir yfirborðið
Borðarnir eru 1,2–1,4 mm á þykkt og dúkurinn enn þynnri. Styrkinguna má mála yfir eða klæða.
Stutt truflun á starfsemi
Uppsetning er án hávaða og titrings og hægt er að taka rýmið fljótt aftur í notkun. Borðarnir koma í heilum lengdum, án samskeyta.
Kerfin

C-Laminate koltrefjaborðar
Forsteyptir borðar sem límdir eru á yfirborð eða í raufar. Til að auka beygjuþol bita og platna.
Breidd 50–120 mm, 1,2–1,4 mm · raufarborðar 10–20 mm

C-Sheet koltrefjadúkur
Dúkur sem mettaður er með epoxýi á staðnum og lagar sig að forminu. Fyrir súlur, skerþol og bogna fleti.
C-Sheet 240 og C-Sheet 640 · breidd 300 og 600 mm
A-Sheet 120 aramíðdúkur
Seigar trefjar sem þola högg. Til að verja súlur gegn árekstrum og jarðskjálftum, og þar sem efnið má ekki leiða rafmagn.
Aramíðtrefjar · fjaðurstuðull ≥ 120 kN/mm²
Tæknigögn í hnotskurn
| Eiginleiki | C-Laminate | C-Sheet 240 | C-Sheet 640 | A-Sheet 120 |
|---|---|---|---|---|
| Trefjar | Koltrefjar | Koltrefjar | Koltrefjar | Aramíð |
| Form | Borði | Dúkur | Dúkur | Dúkur |
| Fjaðurstuðull (kN/mm²) | ≥ 170 (SM), ≥ 205 (HM) | 240 | 640 | ≥ 120 |
| Togstyrkur (N/mm²) | ≥ 2.800 | 4.400–5.100 | 2.600 | ≥ 2.900 |
| Lím | Resin 220 HP | Resin 55 HP eða Resicem HP | Resin 55 HP eða Resicem HP | Resin 55 HP eða Resicem HP |
Kröfur til undirlags
Úr tækniblaði C-Laminate. Verkfræðingur verksins ákveður endanlegar kröfur.
- Togþol yfirborðs: 2 N/mm² að meðaltali, minnst 1,5 N/mm² (togpróf EN 1542)
- Raki í steypu: undir 4% af þyngd
- Hitastig undirlags: minnst 8 °C og 3 °C yfir daggarmarki
- Sléttleiki: mest 5 mm frávik á 2 m. Ójöfnur eru jafnaðar með Resin 230 HP
Hvernig verkið gengur fyrir sig
Fagefni selur efnið og veitir ráðgjöf um val á kerfi. Burðarþolshönnunin og ábyrgðin á henni er hjá verkfræðingi verksins.
Hönnun
- Verkfræðingur metur burðarþolið, velur kerfi og reiknar styrkinguna
- Tækniblöð og hönnunargögn frá S&P eru neðar á síðunni
Uppsetning
- Undirlag er hreinsað og togprófað
- Borðar eru límdir á yfirborð eða í raufar, dúkur er mettaður á staðnum
- Farið er eftir uppsetningarleiðbeiningum S&P, sem eru neðar á síðunni
Ráðgjöf
Við tölum oftast beint við verkfræðistofur, en verktakar leita líka til okkar. Algengustu spurningarnar snúast um tæknigögn og afhendingartíma. Tæknigögnin eru hér á síðunni og afhending tekur yfirleitt 3–4 vikur. Sendu okkur lýsingu á verkinu og við hjálpum þér að finna rétt kerfi eða bendum á rétta ráðgjöf.
Valin verkefni
Nokkur verkefni hér á landi þar sem koltrefjastyrkingar frá S&P hafa verið notaðar:
- Leikskólinn Brákaborg: Burðarþol hússins var ekki ásættanlegt fyrir breytta notkun, en því var breytt í leikskóla og grænt þak bættist ofan á. Um 1,5 km af C-Laminate borðum voru settir upp til að styrkja plöturnar og binda þær saman.
- Leikskólinn Hlíð
- Smáralind: breytingar á burðarvirki
- Landspítalinn í Fossvogi
Skjöl og gögn
C-Laminate koltrefjaborðar
Tækniblað og uppsetningarleiðbeiningar.
C-Sheet koltrefjadúkur
Tækniblöð og uppsetningarleiðbeiningar.
A-Sheet 120 aramíðdúkur
Tækniblað.
Lím og kvoða
Tækniblöð fyrir epoxýlím og viðgerðarefni.
Öryggisblöð
Resin 220 HP, þáttur A og B.
Fyrir hönnuði
Hönnunarforrit og frekari gögn á vef S&P.
Algengar spurningar um koltrefjastyrkingar
Hvað er koltrefjastyrking?
Aðferð til að auka burðarþol steypu, stáls, múrs eða timburs með því að líma á það borða eða dúk úr koltrefjum. Hún er notuð þegar álag eykst, eftir skemmdir eða þegar burðarvirki er breytt.
Hvort á að nota borða eða dúk?
Borðar henta best á slétta fleti, til dæmis undir plötur og bita, til að auka beygjuþol. Dúkur lagar sig að forminu og er notaður um súlur, á bogna fleti og til að auka skerþol. Verkfræðingur verksins velur kerfið.
Koltrefjar eða stálplötur?
Koltrefjaborðar eru léttir í meðförum og auðvelt er að setja þá upp, líka upp í loft og í þröngum rýmum. Þeir þola vel endurtekið álag (þreytu) og auðvelt er að leggja þá þar sem þeir skerast.
Hver hannar styrkinguna?
Verkfræðingur verksins. Fagefni selur efnið og veitir ráðgjöf um val á kerfi.
Er hægt að styrkja timbur, múr og stál?
Já. Samkvæmt S&P má nota C-Laminate á steypu, múr, stál og timbur. Hvaða kerfi hentar fer eftir burðarvirkinu og álaginu.
Hvað kostar koltrefjastyrking?
Verðið fer eftir kerfi og magni og er gefið í tilboði fyrir hvert verk. Sendu okkur teikningar eða magntölur og við sendum þér verð.
Hvað tekur langan tíma að fá efnið?
Efnið er sérpantað fyrir hvert verk og afhending tekur yfirleitt 3–4 vikur frá pöntun.
Fáðu ráðgjöf eða tilboð
Sendu okkur teikningar eða lýsingu á verkinu. Ágúst Örn Ólafsson sölustjóri (agust@fagefni.is) og Arnar Bjarklind söluráðgjafi (arnar@fagefni.is) svara fyrirspurnum um koltrefjastyrkingar.


