-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Djúphreinsir fyrir gólf – Alfix DeepCleaner
Price range: 4.000 kr. through 8.000 kr.
Öflugur djúphreinsir sem leysir upp fitu, þrálát óhreinindi og gamalt bón án þess að skemma yfirborðið. Tryggir góða viðloðun fyrir næstu meðferð.
- Fyrir terrazzo, vínyl, plastlagða fleti og flísar
- Þynnt 1:10 með vatni
- 1 l dugar á 20–40 m²
- Fæst í 1 og 2½ l
Alfix DeepCleaner
DeepCleaner er sterkur og þykkur djúphreinsir fyrir flesta þvottþolna fleti, t.d. terrazzo, vínyl, plastlagða fleti og flísar. Hann leysir upp fitu, þrálát óhreinindi og gamalt bón og er góður til að hreinsa gólf áður en lagðar eru nýjar flísar eða gólfið meðhöndlað á annan hátt. Hann hentar einnig í lokaþrif á nýbyggingum.
Notkun
DeepCleaner er þynntur með vatni 1:10 og borinn á flötinn. Á eldri gólf er best að nota gólfþvottavél og vatnssugu. Næsta meðferð er gerð strax á eftir. Ekki er mælt með hreinsinum þar sem yfirborðið á að vera háglansandi.
Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.


