-
Mánudaga - föstudaga 08:00 - 16:00
-
Staðsetning: Smiðjuvegur 5, 200 Kópavogur
-
Sími: 420 4010
Snertilím, vatnsbundið – Alfix ElastaCol 040
15.645 kr.
Vatnsbundið snertilím án leysiefna fyrir PVC-lista og -þiljur, línóleum-kverkalista, textílslitlag á stiga og kork- og gúmmígólfefni.
- Grípur strax þegar fletirnir mætast
- Opinn tími 1–2 klst., má endurvirkja með hita
- Mikill lokastyrkur
- 3 kg fata
Þú gætir einnig þurft
Alfix ElastaCol 040 snertilím
ElastaCol 040 er vatnsbundið snertilím úr fjölliðudreifu (dispersion), án leysiefna. Það er notað til að líma PVC-lista og -þiljur, kverkalista úr línóleum, textílslitlag á stigaþrep og kork- og gúmmígólfefni. Límið grípur um leið og fletirnir mætast og hefur mikinn lokastyrk. Það má endurvirkja með hita.
Undirlag
Sementsbundið undirlag má vera með mest 85 % RF og samloðunarstyrkur þarf að vera minnst 1 N/mm². Límið hentar einnig á harðar trétrefjaplötur, spónaplötur og krossvið. Undirlagið þarf að vera burðarhæft og laust við ryk og fitu.
Vinnsla
Límið er borið á báða fletina, undirlagið og efnið sem á að líma, með tenntum spaða B1 og síðan valtað þar til áferðin er jöfn. Límið er látið þorna þar til það verður gegnsætt. Þá er efnið lagt á og þrýst vel niður. Hiti í rými þarf að vera minnst 18 °C.
Tæknigögn
- Notkun: um 250 g/m² á hvorn flöt með spaða B1
- Opinn tími: 1–2 klst.
- Þornunartími: um 1 sólarhringur. Þolir létt álag strax eftir lögn
- Geymsla: minnst 12 mánuðir í óopnuðum umbúðum, má ekki frjósa
Ferskt lím er þrifið af verkfærum með vatni.
Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.
| Þyngd | 3 kg |
|---|


