Vínyllím – Alfix ElastaCol 020

18.990 kr.

Leysiefnalaust lím til að líma PVC- og vínylgólfefni, gúmmígólfefni og kork með PVC-bakhlið. Límið hefur langan opinn tíma og mikinn lokastyrk.

  • Fyrir vínyldúka, vínylflísar, gúmmí og pólýólefín
  • Opinn tími um 60 mínútur
  • Þolir stóla á hjólum, lítil útgufun (EMICODE EC1)
  • 12 kg fata
Vörunúmer: ALF-6610 Flokkur: Lausn: Birgi:

Alfix ElastaCol 020 vínyllím

ElastaCol 020 er ljóst, þunnfljótandi lím úr fjölliðudreifu (dispersion) án leysiefna. Það er notað til að líma PVC- og vínylgólfefni, pólýólefín, gúmmígólfefni og kork með PVC-bakhlið. Límið dreifist auðveldlega, drjúgt og þolir álag frá stólum á hjólum.

Undirlag

Sementsbundið undirgólf má vera með mest 85 % RF og samloðunarstyrkur þarf að vera minnst 1 N/mm². Límið hentar einnig á harðar trétrefjaplötur, spónaplötur og krossvið. Undirlagið þarf að vera burðarhæft og laust við ryk og fitu. Steypt undirgólf er flotað, minnst 2 mm, t.d. með ElastaCem 506, og flotið slípað og ryksogið áður en límt er.

Vinnsla

Límið er borið á með tenntum spaða. Eftir 10–20 mínútna loftunartíma er gólfefnið lagt í blautt límið og þrýst vel niður svo ekki myndist loftbólur. Límið á að smita vel á bakhlið gólfefnisins. Gólfefnið er valtað vandlega og aftur um 30 mínútum síðar. Berið ekki meira lím á en hægt er að leggja, skera og valta innan um 60 mínútna.

Hiti í rými þarf að vera minnst 18 °C, hiti undirlags minnst 15 °C og rakastig 40–80 %. Gólfhiti er slökktur minnst sólarhring fyrir lögn og kveiktur í fyrsta lagi 48 klst. eftir hana. Hitinn er síðan hækkaður um mest 5 °C á sólarhring.

Tæknigögn

  • Notkun: 225–275 g/m² með spaða A1
  • Loftunartími: 10–20 mínútur
  • Opinn tími: um 60 mínútur
  • Þornunartími: um 1 sólarhringur. Þolir létt álag strax eftir lögn
  • Geymsla: minnst 12 mánuðir í óopnuðum umbúðum, má ekki frjósa

Ferskt lím er þrifið af verkfærum með vatni.

Nánari upplýsingar eru í tækniblaði framleiðanda undir Vöruskjöl.

Þyngd 12 kg

Tækniblað ElastaCol 020 (danska)

Sækja

Öryggisblað Alfix ElastaCol-lím og grunna (danska)

Sækja

EPD ElastaCol 020

Sækja

EMICODE EC1 Plus vottorð ElastaCol 020

Sækja

Umhverfisyfirlýsing ElastaCol 020 (danska)

Sækja
Alfix ElastaCol 020, vínyllím, 12 kg
Vínyllím – Alfix ElastaCol 020

18.990 kr.

Setja í körfu