PMMA-grunnur á steypu og múr – Triflex Cryl Primer 276

94.590 kr.

Glær og hraðharðnandi PMMA-grunnur á steypu, ílögn og múr. Hann fer fyrstur á flötinn undir öll PMMA-kerfi frá Triflex og tryggir að þéttiefnið nái viðloðun.

  • Lágmark 0,40 kg/m² á sléttan flöt
  • Má ganga á og leggja næsta lag eftir um 45 mín. við 20 °C
  • Vinnsluhiti 0 til +35 °C
  • 10 kg fata

Þú gætir einnig þurft

Herðir fyrir PMMA-efni – Triflex Catalyst Price range: 1.790 kr. through 56.700 kr.
Veldu
Þéttiefni fyrir kverkar og samskeyti, PMMA – Triflex ProDetail Price range: 38.900 kr. through 93.390 kr.
Veldu
Flísdúkur fyrir PMMA-þéttingu – Triflex Special Fleece Price range: 1.204 kr. through 80.575 kr.
Veldu
Vörunúmer: TRI-22760-000-155 Flokkar: , Lausn: Birgi:

Triflex Cryl Primer 276

Primer 276 er tveggja þátta grunnur úr PMMA, án leysiefna. Hann smýgur inn í gljúpt yfirborð, lokar fyrir raka og myndar fast lag sem næstu efni bindast við. Hann er notaður undir ProDetail, ProTerra og ProFloor í svalakerfunum BFS, BTS-P og TSS. Í ProDrain-kerfinu er hann líka notaður sem álagsdreifilag, minnst 1,10 kg/m² í tveimur umferðum.

Undirlag

Steypa og ílögn þurfa að vera hrein, þurr og föst. Viðloðunarstyrkur steypu á að vera minnst 1,5 N/mm² og rakastig í mesta lagi 6 %. Flöturinn er slípaður áður en grunnað er. Á flísar má nota 276 þegar glerungurinn hefur verið slípaður af. Grunnurinn má ekki fara á malbik, þar er notaður Cryl Primer 222.

Vinnsla

Herðirinn, Triflex Catalyst, er hrærður út í rétt fyrir notkun. Í hverja 10 kg fötu fara 0,60 kg við 0–5 °C, 0,40 kg við 5–15 °C og 0,20 kg við 15–35 °C. Við hitastigið sem er algengast hér á landi eru það því fjórir 100 g pokar í fötuna.

Grunninum er rúllað á. Pottlífið er um 15 mínútur, hann er regnheldur eftir um 25 mínútur og má ganga á hann eftir um 45 mínútur, allt miðað við 20 °C. Yfirborðið þarf að vera minnst 3 °C yfir daggarmarki. Best er að grunna þegar hiti undirlagsins fer lækkandi, því þá dregur steypan ekki loft upp í grunninn og síður myndast loftbólur. Í lokuðum rýmum þarf góða loftræstingu.

Nánar um kerfin og val á milli þeirra á síðunni um Triflex svalaþéttingu.

Tækniblað Triflex Cryl Primer 276 (enska)

Sækja

Skoðaðu einnig þessa valkosti

Triflex Cryl Primer 276 – grunnur
PMMA-grunnur á steypu og múr – Triflex Cryl Primer 276

94.590 kr.

Setja í körfu