Gólfefni fyrir skóla, leikskóla, skrifstofur og verslanir. Fæst sem dúkur, plankar og flísar.

Hvað er Purline?

Purline er gólfefni úr pólýúretani (PUR) frá þýska framleiðandanum Wineo. Hefðbundið vínylgólf er PVC-kjarni með þunnu slitlagi ofan á, en Purline er úr PUR nánast í gegnum alla þykktina. Grunnefnið er að mestu unnið úr jurtaolíum, eins og repju- og laxerolíu, og kalki.

Hjá okkur kaupa arkitektar, byggingaraðilar og verslanir Purline fyrst og fremst vegna endingarinnar, en líka af því að það er umhverfisvænni kostur en vínyl. Nýlega fóru yfir 5.000 m² af Purline í skóla á Hellu.

Hentar vel fyrir

  • Skólar og leikskólar
  • Skrifstofur og matsalir
  • Verslanir og þjónusturými
  • Hjúkrunarheimili

Helstu kostir

Þolir mikið álag

Purline 1500 er í notkunarflokki 34 fyrir mjög mikla umferð í atvinnuhúsnæði. Það stenst 25.000 umferðir í stólahjólaprófi (ISO 4918) án skemmda.

Heilnæmara inniloft

Engu PVC, klór, mýkiefnum eða leysiefnum er bætt í efnið. Það er með A+ merkingu og GREENGUARD Gold fyrir lítið útstreymi efna í inniloft.

Nýtist í vottuðum byggingum

Blauer Engel, EPD og Cradle to Cradle-vottun Purline 1500 gefa stig í BREEAM, LEED, DGNB og WELL. Við sendum þér vottunargögnin.

Minna viðhald en línóleum

Línóleum þarf að bóna og verja reglulega. Purline þarf enga yfirborðsmeðferð, hvorki eftir lögn né síðar. Samkvæmt FIGR-stofnuninni sparast allt að 20% í heildarkostnaði á 25 árum.

Úrvalið í Purline 1500

Purline 1500 er 2,5 mm þykkt og alltaf límt. Sama efnið fæst í þremur sniðum og yfir 100 litum og mynstrum.

Dúkur

Rúllur 2 m á breidd og 20 m á lengd. Samskeytin eru soðin, svo dúkurinn hentar stórum, samfelldum flötum eins og skólagöngum.

Plankar

Viðarmynstur í þremur stærðum. Minnstu plankarnir, 480 × 80 mm, eru ætlaðir í fiskibeinamynstur.

Flísar

Flísar í 1000 × 500 mm með stein- og steypuáferð, grátónum, grafísku mynstri eða textíláferð.

Purline í notkun

Dæmi um Purline 1500 í skólum, bókasöfnum, skrifstofum og veitingarýmum.

Tæknigögn Purline 1500

EiginleikiPurline 1500
Hentar fyrirSkóla, skrifstofur, verslanir og léttan iðnað
Notkunarflokkur23 / 34 / 43
LagningLímt
Þykkt2,5 mm
SniðDúkur 2 × 20 m · plankar 1500 × 250, 1200 × 200 og 480 × 80 mm · flísar 1000 × 500 mm
Brunaflokkur (EN 13501-1)Cfl-s1
Hálkuvörn (DIN 51130)R9
Högghljóðsdeyfing~8 dB
Varanleg dæld (EN ISO 24343-1)≤ 0,10 mm
GólfhitiJá, að 29 °C yfirborðshita (dúkur 27 °C)

Vottanir

Vottanir sem skipta máli í skólum, á vinnustöðum og í vottuðum byggingum.

  • Blauer Engel: þýska umhverfismerkið
  • Cradle to Cradle Certified (Purline 1500)
  • GREENGUARD Gold og M1: lítið útstreymi efna í inniloft
  • A+: hæsti flokkur frönsku loftgæðamerkingarinnar
  • EPD: umhverfisyfirlýsing vörunnar

Undirbúningur og niðurlögn

Farið alltaf eftir lagnaleiðbeiningum Wineo, sem eru neðar á síðunni. Hér er það helsta.

Undirlag

  • Þarf að vera slétt, þurrt, fast og hreint
  • Wineo mælir með flotefni til að jafna ójöfnur og fá jafnt ísog
  • Á þétt undirlag eða undirlag með rakavörn þarf flotlagið að vera minnst 3 mm
  • Á gólfhita gildir EN 1264-2 og upphitunarferli þarf að liggja fyrir

Niðurlögn

  • Purline 1500 er límt yfir allan flötinn
  • Stöðugt hita- og rakastig þarf að vera í rýminu minnst 72 klst. fyrir, á meðan og eftir lögn
  • Samskeyti á dúk eru soðin með suðuþræði frá Wineo
  • Undir Purline má nota silentPLUS PU-undirlag, sem dregur úr högghljóði um allt að 17 dB samkvæmt Wineo

Ráð frá Fagefni

Við seljum flotefni, grunn og lím á sama stað. Sendu okkur teikningu eða fermetratölu og nokkrar myndir af gólfinu og við segjum þér hvað undirlagið þarf.

Valin verkefni

Nokkur verkefni þar sem Purline var valið:

  • Skóli á Hellu: yfir 5.000 m² af Purline
  • Leikskóli á Akranesi: Purline Ash
  • Matsalur Verkís: Purline Village Oak, 700 m²

Hjá Fagefni

Við seljum ekki bara gólfefnið heldur líka það sem fer undir það.

Sýningarsalur á Smiðjuvegi 5

Komdu og skoðaðu gólfefni í sýningarsalnum okkar í Kópavogi.

Undirbúningsefni á sama stað

Við seljum líka flotefni, grunn og lím, svo þú færð allt í undirlagið á einum stað.

Magnútreikningur

Sendu okkur mál eða teikningu og við reiknum út hve mikið efni þarf.

Afhending

Purline er oftast sérpantað. Afhending er yfirleitt 4–6 vikur frá pöntun og oft fyrr ef varan er til á lager hjá birgja.

Skjöl og gögn

Purline 1500 bæklingur

Allir litir, snið og tæknigögn fyrir 1500 línuna.

Tækniblöð Purline 1500

Prófanir og tæknilegir eiginleikar.

Lagnaleiðbeiningar

Leiðbeiningar framleiðanda (á ensku).

silentPLUS undirlag

PU-undirlag sem dregur úr högghljóði.

Suðuþráður

Til að sjóða samskeyti á Purline dúk.

Algengar spurningar

Hver er munurinn á Purline og vínylgólfi?

Vínylgólf er úr PVC. Purline er pólýúretan-gólfefni samkvæmt staðlinum EN 16776, sem er sérstakur flokkur gólfefna, og inniheldur hvorki PVC né mýkiefni.

Hver er munurinn á Purline og línóleumdúk?

Línóleum þarf reglulegt bón og er viðkvæmt fyrir raka. Ef vatn kemst í það eða undir það getur það myglað. Purline þarf ekkert bón á líftíma sínum, myglar ekki og hentar samkvæmt Wineo líka í rök rými eins og eldhús og baðherbergi.

Er Purline lífrænt gólfefni?

Wineo kallar Purline „organic flooring“ af því að grunnefnið er að mestu unnið úr jurtaolíum og kalki. Efnið sjálft er samt PUR-gólfefni, ekki náttúrulegt efni eins og korkur eða gegnheill viður.

Er það Purline eða Pureline?

Rétta heitið er Purline, dregið af PUR (pólýúretan). Það er oft skrifað Pureline, en það er sama gólfefnið frá Wineo.

Í hvaða sniðum fæst Purline 1500?

Sem dúk í 2 × 20 m rúllum, planka í 1500 × 250, 1200 × 200 og 480 × 80 mm (fiskibeinamynstur) og flísar í 1000 × 500 mm. Alls eru yfir 100 litir og mynstur í boði. Sjá úrvalið hér ofar.

Nýtist Purline í BREEAM- eða Svansvottuðum verkefnum?

Já. Samkvæmt Wineo gefa EPD, Blauer Engel og Cradle to Cradle-vottun stig í BREEAM, LEED, DGNB og WELL. Purline er líka algengt val í verkefnum sem stefna á Svansvottun. Hafðu samband og við sendum gögnin.

Má leggja Purline á gólfhita?

Já. Yfirborðshiti má vera allt að 29 °C undir plönkum og flísum og allt að 27 °C undir dúk.

Hvað tekur langan tíma að fá Purline?

Purline er oftast sérpantað og afhending er yfirleitt 4–6 vikur frá pöntun. Stundum er það fyrr ef varan er til á lager hjá birgja.

Get ég lagt Purline sjálf(ur)?

Purline 1500 er límt yfir allan flötinn. Við mælum með að fagmenn leggi það á vel undirbúið undirlag.

Er Purline 1200 enn fáanlegt?

Purline 1200 fer úr framleiðslu í lok árs 2026 og ný lína, Purline 1300, tekur við. Við seljum fyrst og fremst Purline 1500, sem hentar best í stærri verkefni og atvinnuhúsnæði. Sjá Purline 1200 eða hafðu samband ef þú ert að leita að 1200 eða 1300.

Fáðu tilboð í Purline

Sendu okkur fermetratölu og þá línu og lit sem þú ert að skoða. Ágúst Örn Ólafsson sölustjóri (agust@fagefni.is) og Arnar Bjarklind söluráðgjafi (arnar@fagefni.is) svara fyrirspurnum um Purline.

Vörur í þessari vörulínu