Sílan sem hrindir frá vatni, olíu og fitu – Arcan PowerSeal 744

Price range: 6.175 kr. through 122.500 kr.

Ósýnileg vörn sem gerir stein, steypu og flísar vatns- og olíufráhrindandi, svo fita, olía og óhreinindi festast síður og auðvelt er að þrífa.

  • Á steypu, náttúrustein, ógljáðar flísar og pússningu
  • Inni og úti, t.d. á svalir, verandir, stiga og gluggakistur
  • Engin filma, yfirborðið andar áfram
  • Vatnsbundið og án leysiefna
  • Fæst í 1, 5 og 25 l
Vörunúmer: Arc-744 Flokkar: , Birgi:

Arcan PowerSeal 744 – vörn gegn vatni, olíu og fitu

PowerSeal 744 er vatnsbundið sílan frá Arcan fyrir gólf, veggi og önnur steinefnayfirborð. Efnið smýgur inn í yfirborðið og gerir það bæði vatns- og olíufráhrindandi. Fita, olía og óhreinindi sem leysast í vatni festast síður, svo auðveldara er að þrífa, til dæmis grillslettur og rauðvín á veröndinni eða olíu og óhreinindi á stigum og gluggakistum.

Efnið myndar enga filmu og svitaholurnar haldast opnar, svo yfirborðið andar áfram og útlitið breytist lítið. Það hentar á steypu, náttúrustein, ógljáðar flísar, terrakotta og pússningu, bæði inni og úti. Ef þörf er á enn meiri vörn má síðar bera BlocSil 790 yfir.

Notkun

Hristu brúsann vel. Efnið er borið á þurrt yfirborð með rúllu, pensli eða lágþrýstiúðara sem myndar ekki úða. Forðastu polla og þurrkaðu umframefni af með ísogandi, lólausum klút. Á mjög gleypnu yfirborði er borið á blautt í blautt í nokkrum umferðum. Best er að prófa fyrst á litlum fleti.

Tæknigögn

Gerð Einsþátta vatnsbundin blanda (alkoxýsílan og flúorfjölliður)
Útlit Mjólkurhvítur vökvi
Eðlisþyngd Um 1,00 g/ml við 20 °C
Efnisnotkun Um 0,1–0,25 kg/m². Steinleir 0,05–0,10, slípuð steypa 0,15–0,20, pússning 0,25–0,30
Geymsla 12 mánuðir óopnað, má ekki frjósa, opnað innan 4 vikna

Tækniblað Arcan PowerSeal 744 (PDF, á ensku)

Umbúðir

1l, 5l, 25l

Tækniblað / Data Sheet- Enska / English

Sækja

Tækniblað/

Skoðaðu einnig þessa valkosti

Arcan SiliBond 970 sílikat styrkingarefni fyrir steypu

Yfirborðsherðir fyrir steypu – Arcan SiliBond 970

Price range: 12.865 kr. through 59.950 kr. Veldu kosti This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page
Sílan sem hrindir frá vatni, olíu og fitu – Arcan PowerSeal 744
Sílan sem hrindir frá vatni, olíu og fitu – Arcan PowerSeal 744

Price range: 6.175 kr. through 122.500 kr.

Setja í körfu This product has multiple variants. The options may be chosen on the product page